Skírnir - 01.01.1930, Side 124
118
Alþingi árið 1262.
[Skírnir
því, að konungur Norðmanna tók nú að blanda sér í mál
manna á íslandi. Eigi efndi Snorri loforð sín, og vann hann
ekkert fyrir þá Hákon konung.
Næsti íslenzkur höfðingi, sem lofaði Hákoni konungi
að koma íslandi undir hann, var Sturla Siglwatsson, bróð-
ursonur Snorra Sturlusonar. Hann dvaldist með konungi
veturinn 1234—1235. Konungur var hygginn maður og tók
Sturlu vara fyrir því, að vinna landið með manndrápum,
heldur skyldi hann taka menn og senda þá utan til kon-
ungs, eða fá ríki þeirra með öðru móti, ef hann mætti
(Hák. saga, 180. kap.). Sturla var ekki vaxinn þvi starfi, er
hann hafði að sér tekið. Hann var að vísu vörpulegur
maður, en skorti það fastlyndi og harðlyndi, sem þá þurfti
til þess að koma landinu undir erlenda þjóðhöfðingja.
Framkvæmdir hans í þessu efni urðu því máttlaust fálm.
Mestu höfðingjar á íslandi, auk Snorra og þeirra feðga
Sighvats og Sturlu, voru um þessar mundir Gizur Þor-
valdsson og Kolbeinn ungi Arnórsson. Sturla tók Gizur að
vísu höndum í Apavatnsför 1238, en virðist ekki hafa haft
kjark í sér til að ganga milli bols og höfuðs á honum,
enda var Gizur þá alsaklaus við Sturlunga. Gizur sór ut-
anför sína, en rauf auðvitað þann nauðungareið. Endir
skifta þeirra Sturlu varð sá, að Sturla, faðir hans og bræð-
ur þrír létu allir lífið á Örlygsstöðum i Skagafirði í ágúst
1238. Um Sturlu hafði farið sem Snorra. Hann fékk engu
áorkað um erindi Hákonar konungs.
Eftir Örlygsstaðafund 1238 voru þeir Gizur Þorvalds-
son og Kolbeinn ungi voldugastir höfðingjar islenzkir, og
Snorri Sturluson. En hann var þá ekki á landi hér, heldur
í Noregi annað sinn. Bannaði Hákon konungur honum og
öðrum íslendingum þá för til íslands. En Snorri fór allt að
einu (1239), í banni konungs, og var þó handgenginn mað-
ur hans. En hvers vegna bannaði konungur Snorra för
1239? Sennilega af því að Snorri var meiri vinur Skúla
hertoga en konungs, enda segja sumir Skúla hafa þá gefið
Snorra jarls nafn. Hákon hefir ekki treyst Snorra til að
reka erindi sín á íslandi. Hann hefir ætlað sér að vinna