Skírnir - 01.01.1930, Page 125
Skírnir]
Alþingi árið 1262.
119
<3izur og Kolbein fyrst á sitt band. Konungur gleymdi ekki
Snorra því, að hann hafði farið í banni hans. Konungur
var um þessar mundir tekinn að senda hingað norska trún-
aðarmenn sína, bæði til þess að vingast við höfðingja og
þó einkum til þess að njósna um hugi þeirra hvers til
annars og til konungs, og til þess, að þeir gæti síðan flutt
honum, hversu íslenzku höfðingjarnir ræki erindi konungs.
Sumarið 1241 kom út Eyvindur brattur, trúnaðarmaður
konungs, með bréf hans. Var þeim bréfum fyrst lítt á loft
haldið. Voru þau til Gizurar stíluð og Gizuri boðið að
þröngva Snorra til utanfarar eða drepa hann að öðrum
hosti, af því að Snorri hefði farið út í banni hans. Gizur
'°g Kolbeinn hittust á Kili síðla sumars 1241 og afréðu þá
að ráða Snorra af dögum. Bar Gizur fyrir sig bréf kon-
ungs og sagðist með engu móti vilja brjóta þau. Konung-
Ul’ hefir auðvitað haft nánar spurnir af höfðingjum á ís-
iandi um þessar mundir. Hann hafði kirkjuvaldið með sér,
°g síðan 1237 voru biskupar á íslenzku biskupsstólunum
norskir. Voru þessir norsku biskupar þæg verkfæri í hönd-
uni konungs alla tíð frá 1237 og til 1260. Konungur taldi
Snorra Sturluson sér ótryggan. Hins vegar vissi konungur,
að Gizur Þorvaldsson var vitur maður og vinsæll með
sinum mönnum. Hættulegasta keppinaut Gizurar um völd
°g auð hefir Hákon talið Snorra. Líka vissi konungur,
hvert skarð þeir Gizur höfðu höggvið í ætt Snorra á Ör-
tygsstöðum, og gat konungur því getið sér til, að Gizur
niundi eigi treysta Snorra. Konungur hefir því séð, að
Gizur væri líklegastur manna til þess að koma Snorra ut-
an eða ráða hann af dögum. Auðvitað hefir konungur líka
lofað þeim Gizuri og Kolbeini sæmd hér og lénum, ef þeir
ynni þetta verk og kæmi landi undir hann. Gizur hefir
verið þess fús, að ryðja Snorra úr vegi, og það var af
þeim ástæðum, sem nefndar voru. Gizur rak þó ekki er-
indi konungs alveg eins og konungur vildi. Fyrst og fremst
átti Gizur að reka Snorra utan, á fund konungs. En Gizur
gerir enga tilraun í þá átt, heldur lætur hann alveg orða-
iaust og að óvörum vega Snorra á næturþeli á heimili