Skírnir - 01.01.1930, Page 137
Skírnir]
Alþingi árið 1262.
131
vinna þurfti á heimilum manna. Þess mun hvergi getið, að
búverk, utan bæjar eða innan, hafi eigi orðið unnin, svo
að verulegt tjón gerðist að. Skærur Sturlungaaldar hafa ef
til vill slegið óhug á marga. En þess er þó að gæta, að
hefndarhugur og víkingslund var enn ríkur í mönnum, og
þeir brugðu sér eigi þá meir við sár eða bana en þeir
gerðu á söguöldinni. Það mun því varla verða fullyrt, að
mannalát þeirra tíða fyrir vopnum hafi skift miklu í þessu efni.
2. Árferði fyrstu 60 ár 13. aldar virðist hafa verið
mjög með sama hætti, sem það hefir jafnan verið á landi
hér: Góðæri og illæri á víxl. Annaðhvort góðra ára eða
illra er getið, meðalára sjaldan. í upphafi 13. aldar virðist
hafa verið hart í ári. Árin 1200—1203 voru hörð ár. Eink-
um var árið 1203 mjög illt. Svo kemur aftur illæriskafli
árin 1225 og fram yfir 1230. Að minnsta kosti hafa sum
þessara ára verið allill. 1233 og 1236 voru og ill ár. Svo
koma sérlega ill ár 1251, 1258, 1259 og 1261. Þá var haf-
ísár mikið og fjárfellir. Nú má búast við nokkrum ýkjurn í
skýrslum urn tíðarfar, enda varla komið svo gott ár, að
hvergi félli einhver fénaður og jafnvel eitthvað fátækra
manna, sem þá og lengi síðan var haft á för um hreppa
landsins. Það má nú vera, að fjárhagur landsmanna um
1262 hafi verið í lakara lagi vegna harðra ára, er virðast
hafa komið þá 3 hvert nærri öðru. Þetta kann líka að
hafa veikt mótstöðuafl þeirra, en fráleitt svo, að úrslitum
hafi ráðið.
3. Atvinnuvegir manna höfðu lítt breytzt síðan á sögu-
öld. Verzlunin við útlönd hefir þó mjög dregizt úr hönd-
um landsmanna eftir því, sem skipastóll þeirra gekk úr sér.
Þegar fram um miðja 13. öld kemur, þá munu fáir íslend-
ingar hafa átt í kaupskipum. Norðmenn hafa aðallega ann-
ast flutninga til landsins og frá þvi. í rauninni var landið
orðið alveg upp á Noreg komið um vöruflutninga til lands-
ins og kaup á þeirri vöru (vaðmálum aðallega), sem ís-
lendingar höfðu sér til kaupeyris. Með því að skipastóll
íslendinga var nálega horfinn úr sögunni, þá er einsætt,
hver voði landinu stóð af aðflutningaleysi, ef kaupferðir úr
9*