Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 146
140
Alþingi árið 1281.
[Skírnir
Erfðabálki, auk þess, sem konungi var heitið þegngildi um
land allt.') Landsmenn hafa tekið þessari löggjafartilraun
konungs með fullkominni tortryggni. En konungur beitir þá
sama bragðinu og faðir hans hafði þráfaldlega beitt í við-
skiftum sínum við íslendinga, að nota flokkasundrungina í
landinu til að koma máli sínu fram. Staðamálin voru byrjuð,
og á þessu ári sömdu þeir Árni biskup Þorláksson og
Steinvararsynir það með sér, að leggja ágreining sinn um
forræði yfir Oddastað undir úrskurð konungs og erkibisk-
ups. Ritaði Árni biskup til konungs og bað hann liðs. Kon-
ungur ritaði á móti og tók á öllu Jíklega, en beiddi þess
af sinni hálfu, »at biskup skyldi eggja menn á íslandi at
taka við lögbók hans«.1 2 3) Biskup var of hagsýnn til að
bregðast þessari beiðni og studdi því öfluglega lögtöku
bókarinnar, og á Alþingi sumarið næsta, 1272, var bókin
öll lögtekin, nema Erfðabálkur.8) Leikmenn hafa vegna staða-
málanna eigi árætt að ganga á móti vilja konungs, er
kirkjuvaldið var snúið þannig í lið með honum. Um haust-
ið 1273 var Erfðabálkur loks samþykktur og er það einnig
þakkað flutningi Árna biskups aðallega.4) Vér sjáum af
þessu, að konungur hefir átt Árna biskupi það að þakka,
að Járnsíða var lögtekin og að biskup hefir fylgt því máli
fyrst og fremst í því skyni, að gera konung sér hliðhollan
í staðamálunum. Mótspyrnan gegn bókinni kom frá lei'k-
mönnunum. En óttinn við það, að konungur kynni að snú-
ast á sveif með biskupi i staðamálunum hefir dregið kjark
úr þeiin. Allt er oss ókunnugt um það nú, hvað lands-
menn hafa haft út á Járnsíðu að setja, en það, að lögtaka
hennar tók þrjú ár, sýnir glöggt, hversu lítils menn í raun
og veru mátu konungsvaldið, og hversu menn tortryggðu
öll afskifti þess af málum landsins. Þannig hafði konungi
þá tekizt að fá lögleidda nýja lögbók á íslandi. En um
þær mundir, sem lögleiðslu Járnsíðu lauk hér á landi, var
1) Bisk.s. I, bls. 688—689. ísl. ann., bls. 49, 68, 138.
2) Bisk.s. I., bls. 689.
3) Bisk.s. I., bls. 690.
4) Bisk.s. I., bls. 695.