Skírnir - 01.01.1930, Síða 163
Skírnir] Alþingi árið 1281. 157
vill, at hann sé einn eða fleiri«. Orðalagið á ákvæði þessu
er nálega samhljóða því, er í sögunni greinir, nema hvað
hér vantar orðin »yiir guðs lögum ok lands lögum«. Hand-
rit þessi, AM. 140, 4t0, og 149, 4t0, eru að vísu hvorugt
eldra en frá 16. öld, en þó bæði allmerk. Að klausa þessi
finnst í handritum þessunr bendir því, ásamt sögunni, til
þess, að hún hafi verið í frumvarpinu, sem lá fyrir þing-
inu 1281. Að hana vantar í öll önnur handrit bókarinnar
bendir aftur á móti til þess, að hún hafi ekki verið lög-
tekin. Sagan bendir og til hins sama. Þess var áður getið,
að bókin var öll lögtekin, nema þau ákvæði, er handgengnir
menn vildu, að stæði til konungs úrskurðar og erkibiskups.
í*au hafa að einhverju leyti snert kirkjuna, úr því þau áttu
að liggja undir úrskurð erkibiskups. Það sýnist ekki ólík-
lega til getið, að hér sé einmitt um þetta ákvæði að ræða.1)
Árni biskup hefir þá átt það liðsinni óvina sinna, leik-
mannaforingjanna, að þakka, að honum tókst að hrinda
þessari árás á frelsi heilagrar kirkju.
Nokkur líkindi eru til þess, að fáein önnur ákvæði, er
í frumvarpinu hafa staðið, hafi eigi fengið samþykki Al-
þingis. Merkast þeirra er liinn svonefndi Óðalskapítuli.2)
Ei‘ hér eigi rúm til að rekja það nánara.
Loðinn leppur og Árni biskup hafa skilið með full-
kominni óvild á Alþingi. Loðinn kallaði leikmenn þá, sern
fylgt höfðu biskupi að málum, landráðamenn og stefndi
þeim utan. Horfðist óvænlega á um mál þessi um hríð. En
um sumarið gengu þeir Rafn Oddsson og Jón lögmaður
milli þeirra biskups og Loðins. Kom svo, að Loðinn bauð
biskupi til veizlu niður á Eyrarbakka og voru þar fleiri
höfðingjar. Náðist þar samkomulag um flest deiluatriðin.
Eiskup samþykkti sumt af því, er hann áður hafði mót-
m0elt, en Loðinn sveigði aftur undan í öðrum atriðum. Um
nokkur atriði í bókinni var ritað til konungs og hann beð-
inn að gera breytingar á þeim. Tók konungur þá beiðni að
1) Sjá um þetta Jónsbók, útg. Ól. Halld., bls. V—VI.
2) Jónsbók, útg. Ól. Halld., bls. XI—XV. Alþ.b. ísl. V., bls. 27-35.