Skírnir - 01.01.1930, Síða 167
•Skirnir]
Alþingi árið 1481.
161
2 hjáleigum aðrar enn Hvassafell, sem mun hafa verið
heimanfylgja konu hans, því að nokkurn hluta þeirrar jarð-
ar gaf hún upp við frændkonu sína eina, með samþykki
bónda síns, árið 1488. Þó er þeirrar jarðar ekki getið í
gjörningi um kaupmála þeirra hjóna, sem gefinn var út
1471, 10 árum eftir að hann fór fram. Bjarni þessi virðist
hafa verið nokkuð við jarðabrask riðinn, að minnsta kosti
írá því 1462. Einhverntíma á árabilinu 1475—80, eða öllu
frekar árið 1479, lenti Bjarni þessi í þeim endemum, að
leggjast með dóttur sinni 13 ára gamalli, og héldust þau
ósköp um skeið. Urðu þessi vandræði brátt hljóðbær manna
á milli, og fór svo, að Ólafur biskup Rögnvaldsson lét hafa
Bjarna í haft, að öllum líkindum 1479. Um haustið 1480
var málið komið á þann rekspöl, að Bjarni hafði játað af-
brot sitt fyrir Ólafi biskupi, þótt játning hans skyti nokk-
uð skökku við aðra vitnisburði um það, hvenær þessi
óhæfa hefði hafizt, því að Bjarni sagði stnlkuna hafa verið 15
ára. er það gerðist. í upphafi árs 1481 var afbrot Bjarna
orðið svo sannprófað, að Finnbogi Jónsson, sem þá var
sýslumaður í Þingeyjarsýslu, en síðar lögmaður, kyrrsetti
alla peninga Bjarna til þess að tryggja rétt kóngdómsins,
sem átti hálfar sektir af þessu broti móts við biskup. Eftir
þetta gekk Bjarni til sætta við biskup, og setti hann hon-
um skriftir, en til frekari fullvissu lét biskup tólf presta
l7- nóv. 1480 dæma Bjarna til þess að halda þær skriftir,
sem hann væri maður til að bera, en hálft fé hans undir
biskup, og er í þeim dómi vísað til kristinréttar. Er sú til-
vísun rétt að öllu, því að þar segir, að sá maður sé »frið-
laus, og bæði þau, þar til þau taka skrift þá, er biskup
'eggur á þau, og bæði hafa þau fyrirgert hverjum peningi
l]ár síns, bæði í löndum og lausum aurum; það á hálft
konungur, en hálft biskup«. Það leiðir því og nánast af
sjálfu sér, að Jón Sigmundsson sýslumaður í Eyjafjarðar-
sýslu, síðar Iögmaður, sá er í vandræðunum lenti við
Gottskálk biskup II. (grimma), fór 10 dögum seinna að
fiera ráðstafanir til þess að tryggja rétt konungs, þó svo,
11