Skírnir - 01.01.1930, Page 192
186
Alþingi árið 1541.
[Skírnir
ritgerð að rekja þessa sögu nákvæmlega. Eru þar ýms
deilumál milli fræðimanna, heimildir ekki trúar og ýmsar
þversagnir. Greinir menn einkum á um það, hve mikinn
þátt Gizur biskup muni hafa átt í handtöku Ögmundar
biskups, og má benda mönnum á tvær all-greinilegar frá-
sagnir um þessa viðburði, sína frá hvorri hlið, ‘) en fara
svo fljótt yfir sögu og draga fram aðalatriðin ein.
Fregnin um komu herskipa barst þegar í stað austur.
Brá Gizur við fljótt og fór á fund Hvítfelds. En Ögmundi
biskupi var ráðlagt að forða sér undan, meðan herskipin
væri hér. Vildi hann þó fyrst bregða sér til Ásdísar systur
sinnar, sem bjó á Hjalla í Ölfusi, og kom það upp síðar,
að hann var að forða fjármunum sínum og gripum, því að
hann hefir grunað, að eftir þeim yrði leitað, eins og fram
kom síðar. En meðan hann var staddur á Reykjum í Ölfusi,
kom þar sendiinaður með bréf frá Gizuri, þar sem hann
sagði honum, að Danir myndi ekki gera honum neitt mein,
og væri honum því óhætt að vera kyr.1 2) Fór Ögmundur
þá að Hjalla og dvaldi þar fyrst um sinn.
Eftir Kópavogsfund reið Gizur biskup austur og Kláus
með honum. Af annari hálfu voru gerðir út hermenn aust-
ur að Hjalla. Komu þeir þangað um dagmál, 2. júní. Var
fátt manna heima, enda engin leið að standa gegn hóp
vopnaðra hermanna. Tóku þeir þar Ögmund, veittu honum
hraklega meðferð og höfðu hann með sér til Hólmsins,
þar sem skip Hvítfelds lágu. Var hann þegar settur út í
skip Hvítfelds og hafður þar í haldi.
Nú var þá næst að ná eignum Ögmundar. Voru hvað
eftir annað sendir menn austur að Hjalla með loforð urn
1) Dr. Páll E. Ólason: Menn og menntir II., 330; dr. Jón Helga-
son: Kristnisaga Islands II., 43.
2) Ýmsir efast um, að frásögnin um bréf þetta geti verið rétt,
en höf. greinar 'þessarar hefir ekki getað fallizt á rök þeirra. Settí
hann skoðun sína á þessu máli fram árið 1917 í ritgerð um siða-
skiftin og fyrirlestri um handtöku Ögmundar (hvorttveggja óprentað).
Eru þær skoðanir mjög í samræmi við það, sem dr. P. E. Ó. ritaði
siðar um þetta mál.