Skírnir - 01.01.1930, Page 236
230
Alþingi árin 1700 og 1701.
[Skírnir
ustu kaupmönnum Dana og ráku þeir verzlunina um hríð
með miklum dugnaði og hörku. Var ekki dælt fyrir íslend-
inga að eiga við þá, enda hélt nú einveldið innreið sína
á íslandi og danskir embættismenn fengu völd þau, er ís-
lenzkir höfðingjar höfðu áður haft. Þó virtist svo einu
sinni, sem konungur hefði hug á að bæta úr verzluninni.
Þegar Kristján V. kom til valda 1670, sendi hann Jens
Rodsten, sjóliðsforingja, til íslands til þess að taka eiða af
landsmönnum. Hann kom út eftir að þingi var slitið og
var mönnum því stefnt til Bessastaða til þess að vinna
eiðana. Á þeim fundi boðaði Rodsten þann vilja konungs,
að íslendingar tækju sjálfir þátt í verzluninni, og bað Bryn-
jólf biskup Sveinsson að hafa forgöngu í málinu, enda var
hann þá talinn merkastur maður og mest metinn hér á
landi. Biskup brást vel við og ritaði öllum próföstum í
Skálholtsstifti og bað þá að ræða málið við prestana, en
undirtektir voru daufar.') Prestarnir treystust ekki að hefj-
ast handa og báru við fátækt og féll það mál svo niður.
Framan af gekk félaginu vel, en síðar varð það fyrir
ýmsum töpum, og þá fóru kaupmenn að koma fram með
hinar vanalegu kröfur um breytingu á kaupsetningunni,
enda hafði orðið mikil breyting á vöruverði síðan 1619.
Konungur tók vel undir þetta, en kvaðst þó ekki vilja taka
neinar ákvarðanir, án þess að leita álits íslendinga, og
stefndi hann því fjórum mönnum af íslandi til Danmerkur
til þess að ráðgast við kaupmenn og stjórnina um nýja
kaupsetningu. Þessir fulltrúar voru kosnir á Alþingi 1683,
og fengu meðferðis bænarskrá um, að gamla kaupsetning-
in mætti haldast óbreytt. Er auðséð, að þingmönnum hefir
staðið mikill geigur af væntanlegum breytingum. En áður
en bundinn væri endir á málið, leystist verzlunarfélagið
upp, og umdæmaverzlunin hófst árið 1684.
Hafnirnar voru boðnar upp í Kaupmannahöfn, tvær
og tvær saman, og afgjaldið hækkaði því nær um helm-
1) Bréf Brynjólfs biskups og svör prestanna eru prentuð í J. J.
Aðils: Einokunarverzlun Dana á íslandi, bls. 126—128.