Skírnir - 01.01.1930, Page 245
Skírnir]
Alþingi árin 1700 og 1701.
239
hvernig ráða megi bót á þeim. Það var ekki einungis
minnzt á verzlunina, heldur líka á aðra atvinnuvegi
landsins, stjórnarfar, lögbók og margt annað.') Loks var
hin vanalega hjálparbeiðni til einvaldskonungsins. Skjalið
var undirskrifað 20. júlí og eru undir þvi nöfn Jóns bisk-
ups og þriggja presta, og Páls Vídalíns og þriggja sýslu-
manna.1 2) Jafnframt skrifuðu þessir menn Árna Magnússyni
og fólu honum á hendur að koma þessari bænarskrá á
framfæri við konung og styðja þar tillögur þeirra.3)
Gottrúp og fylgismenn hans voru heldur ekki aðgerða-
lausir. Þeir héldu fast við utanför lögmanns og var hon-
um fengin í hendur bænarskrá til konungs, undirrituð af
Sigurði lögmanni og 23 merkum mönnum, lærðum og leik-
um.4 5) Þegar þessi bænarskrá er borin saman við þá, er
þeir Páll sömdu, kemur það í Ijós, að eiginlega hafa báðir
flokkar verið sammála um, að verzlunarástandið yrði að
breytast. Það væri hin brýnasta nauðsyn fyrir land og lýð.
Þó vilja þeir Jón biskup og fylgismenn hans ekki biðja um,
að einokunin sé afnumin, því óvíst væri, hvort þá væri
hægt að fá nokkra menn til að sigla hingað til lands. Ann-
ars er bænarskrá þeirra Gottrúps miklu styttri og fjallar
þvi nær eingöngu um verzlunarmálið, eins og við var að
búast, þar sem lögmaður átti að fara sjálfur til að tala
máli íslendinga við stjórnina. Auk þess sendu þessir sömu
24 menn bréf til Gyldenlöve stiftamtmanns, sem hafði aldrei
komið til íslands, og til Reventlows kanzlara.6) Ennfremur
fékk. Gottrúp álitsskjal Björns biskups, dagsett á Hólum
11. júlí, og þingsvitni úr mörgum sýslum landsins. Nú
þóttist Gottrúp fær í flestan sjó, og reið af Alþingi til
Keflavíkur, ásamt fylgdarliði sínu, en þá kom babb í bátinn.
Kaupmaður þverneitaði að láta Gottrúp og fólk hans
1) Flestar af þessum tillögum má finna i bók P. V.: Deo, regi,
patriæ.
2) Lbs. 50 fol., nr. 18.
3) A. M.: Embedsskrivelser, 8.
4) Lbs. 50 fol., nr. 10.
5) Lbs. 50 fol., m. 11-12.