Skírnir - 01.01.1930, Page 247
Skirnirj
Alþingi árin 1700 og 1701.
241
Gottrúp lagði tvær aðaltillögur fyrir nefndina. Önnur
var um að fá nýja kaupsetningu, en hin um að gera þá
breytingu á verzlunartilhöguninni, að umdæmaverzlunin
yrði lögð niður, en í stað þess stofnað eitt allsherjar
verzlunarfélag. Heidemann, er talinn var sérfræðingur í
málefnum íslands, tók við tillögunum, og átti fund við
kaupmenn 10. nóv. til þess að ræða þær.
Kaupmenn tóku þessu illa, og töldu öll tormerki á, að
hægt væri að breyta tilhögun verzlunarinnar. Gekk nú allt
í þófi um hríð. Gottrúp barðist drengilega fyrir málstað
Islendinga, en fékk engan stuðning frá þeim. Loks tók
hann að örvænta um árangur fararinnar, og ritaði konungi
bréf 5. jan. 1702.’) Segir hann í því, að aðalerindi sitt hafi
verið að fá komið á umbótum á verzluninni, og það, sem
mest væri áríðandi, sé að verzlunarumdæmin væru afnum-
in, ný kaupsetning sett og stofnað eitt verzlunarfélag. Bað
hann konung að gefa út auglýsingu um, að hver sem vilji
megi taka þátt í stofnun væntanlegs íslenzks verzlunar-
félags.
Nú fór að kóma skriður á málið. Kaupmenn tóku að
óttast um sinn hag. Þeir féllust því á, að ný kaupsetning
yrði sett, gegn því að eftirgjald hafna yrði lækkað, enda
hafði Heidemann áður gefið þeim í skyn, að samningar
gætu tekizt með þeim og stjórninni á þeim grundvelli.
Varð það loks að samkomulagi milli nefndarinnar og kaup-
manna, að verð á útlendum varningi skyldi lækka, en ann-
ars allt sitja við hið sama og áður, nema dregið var úr
refsingum fyrir brot á verzlunarlögunum. Ekki var Gottrúp
kvaddur til ráða um þetta samkomulag kaupmanna og
nefndarinnar, og undi hann þessu hið versta. En hér varð
engu um þokað. Konungur gaf út nýja kaupsetningu 10.
apríl 1702.1 2)
Þessi kaupsetning var til mikilla hagsbóta fyrir íslend-
inga, því flestar útlendar vörur voru lækkaðar í verði um
1) Lbs. 40 fol„ nr. 45.
2) Lovs. f. Isl. I., bls. 563.
16