Skírnir - 01.01.1930, Page 253
Skirnir] Alþingi árin 1798—1800. 247
an lögþingið. Annars telur hann, að mismunur á vega-
lengdum eigi ekki að koma til álita gegn því gagni, sem
almenningur haíi af flutningi lögþingisins, né ráða úrslitum
um, hvar staðurinn verði valinn. Loks telur stiftamtmaður
það til gildis flutningnum, að hið nýja hús megi og nota
sem ráðhús handa Reykjavíkurkaupstað og fyrir bæjar-
þingið, þegar að því kemur, og héraðsþingið.
Stærð hússins telur hann hæfilega 12 til 13 álnir að
lengd, 8 álnir á breidd og tvílyft, svo að þinghöldin geti
farið fram niðri, en starfsmenn við réttinn fengið íbúð á
annarri hæð. Að endingu segist stiftamtmaður gera sér því
vissari von um, að kanselliið fallist á hugmynd þessa, sem
miði að því að bæta réttarfarið, auka þægindi þeirra, er
hlut eiga að máli, og vera til gagns og prýði fyrir Reykja-
víkurkaupstað, með því að kansellíið hafi gefið gilda ástæðu
til þess með bréfi 7. maí 1785 til þáverandi stiftamtmanns,
þar sem samskonar hugmynd er studd.
Eins og sjá má af bréfi þessu, er stiftamtmaður þess
eindregið fýsandi, að þingstaðurinn sé fluttur, og slær á
þá strengi, sem helzt kitluðu eyru stjórnarinnar. í bréfinu
er Alþingi hvergi nefnt á nafn; sú stofnun hafði nú orðið
svo lítið gildi, að æðsti valdsmaður landsins gat komizt
alveg hjá því að nefna hana i sambandi við þessa réttar-
farslegu ráðstöfun, flutning domþinganna. Vilji allra þeirra
fyrirmanna þjóðarinnar, sem urn malið fjölluðu, hneig í
eina og sömu átt, að það bakaði óhagræði á alla lund að
heyja þing á Þingvelli. Um rö^kan mannsaldur hafði ekki
tekizt að komast að neinni niðurstöðu, þótt lögmenn kvört-
uðu látlaust yfir ástandi hússins. Áskoranir til stjórnar og
stiftamtmanna báru engan árangur. Nú tóku lögmenn af
skarið og neituðu að hlíta við húsið, og er það síðasta
ályktun, sem gerð var á Alþingi við Öxará og boðuð
þjóðinni.
Samkvæmt því, sem á undan var gengið, var það ekki
mikill ábyrgðarhluti fyrir stiftamtmann að breyta til um
þingstaðinn, og það gerði hann á sitt eindæmi, í orði
kveðnu þó aðeins af brýnni nauðsyn og til bráðabirgða.