Skírnir - 01.01.1930, Page 254
248
Alþingi árin 1798—1800.
[Skírnir
Upp á væntanlegt samþykki stjórnarinnar fyrirskipar hann,
að næsta þing skuli háð í Reykjavík, og tilkynnir hann
lögmönnum báðum þessa ráðstöfun með bréfi 8. okt. 1798.
í bréfi þessu segir hann, að vegna þess að þeir lögmenn-
irnir hafi látið birta það almenningi, að þeir gætu ekki
framvegis háð lögþingið í húsi þess við Öxará, hafi hann
lagt það til við kansellíið, að lögþingishús verði reist af
nýju í Reykjavíkurkaupstað, sökum þess að kansellíið hafi
í bréfinu 7. maí 1785 talið flutning hússins á hentugri stað
nauðsynlegan og horfið frá að endurbæta hið gamla hús.
Ennfremur getur hann þess, að hann hafi skýrt kansellíinu
frá þvi, að hann sæi sér ekki fært að útvega sæmilegt
húsnæði fyrir yfirréttinn og lögþingið, meðan nýtt hús
væri í smíðum, annarstaðar en í Reykjavík, og fyrir því
yrði að halda lögþingið þar. Leggur hann því fyrir lög-
menn í stefnum til lögþingis að kveðja aðilja og aðra,
er hlut eiga að máli, til Reykjavíkur á venjulegum lög-
þingistíma, og megi vænta, að dómar geti orðið upp kveðnir
þar, með því að lögmönnunum muni fengið viðunanlegt
húsnæði ti! þess. Ennfremur er lögmönnum tjáð, að yfir-
rétturinn verði og háður í Reykjavík. Likt bréf skrifar stift-
amtmaður öllum sýslumönnum 27. nóv. s. á.
Fleirum var ekki bréflega tilkynnt þessi ráðstöfun.
Fyrir því spyr Geir biskup Vídalín, með bréfi 15. júní 1799,
stiftamtmann sem meðforseta í sýnódalréttinum, hvort sá
réttur skuli sem fyrr haldinn við Öxará eða talinn fluttur
ásamt lögþinginu til Reykjavíkur. Samkvæmt áritun á bréf
biskupsins svaraði stiftamtmaður honum munnlega því, að
sýnódalréttinn skyldi halda í Reykjavík.
Lögþingisskrifaranum, Þorleifi Nikulássyni, hafði stift-
amtmaður ekki skýrt frá flutningi þingsins, hvorki skriflega
né munnlega. Þorleifur ritar því stiftamtmanni bréf, 6. júlí
1799, sem í íslenzkri þýðingu er á þessa leið:
»Ég, hinn konunglegi landþingisskrifari hér á íslandi,
hefi ferðazt hingað til Reykjavíkur einungis vegna orða-
sveims um það, að lögþingið eigi nú í ár að heyja í Reykja-
vikurkaupstað. Þegar fyrir löngu hefi ég með aðstoð mágs