Skírnir - 01.01.1930, Side 255
Skírnir] Alþingi árin 1798—1800. 249
mins, síra Brynjólfs dómkirkjuprests, leitazt við að tryggja
mér öruggan bústað hér, þar sem ég get innt af hendi
starf mitt, ótruflaður af bæjarskvaldrinu, og hefir mér ver-
ið vísað á herbergi konrektors í skólanum. En þar sem ég
er nú orðinn þess vísari, að herbergi þetta er ætlað öðr-
um lögmannanna, leyfi ég mér í auðmýkt að spyrja, hvernig
ég, sem enga viðvörun hefi fengið um þessa breytingu
lögþingisins, eigi að hafast við hér í Reykjavík, samboðið
lögþingisskrifaraembætti mínu, sem þarf þægilegt herbergi
á afviknum stað.«
Virðist ekki laust við, að í bréfinu kenni dálítillar
gremju, sem þó má ætla, að ekki sé sprottin af því, að
þingið hefir verið flutt, heldur af móðgun bréfritarans yfir
því að fá ekki skjallega tilkynningu stiftamtmanns um
flutninginn.
Stiftamtmaður svarar bréfinu munnlega þannig, að
ákveðið sé að nota skólahúsið í þetta sinn.
Áður en þing hófst í Reykjavík 1799, hafði stiftamt-
manni ekki borizt neitt svar frá kansellíinu við bréfi sínu
frá 12. sept. En fjármálastjórnin ritaði stiftamtmanni um
málið, 1. júní 1799, og féllst algerlega á það, að Alþingi
verði framvegis háð í Reykjavík, sérstaklega vegna kostn-
aðar og erfiðieika að reisa hús hér á landi; enda muni, er
stundir líða, þurfa að reisa fleiri opinberar byggingar í
Reykjavík, einkum ráðhús, og hyggur fjármálastjórnin, að fá
mætti fleiri stofnunum húsnæði í sömu byggingu. Bendir
hún á hús Sunkenbergs kaupmanns, sem kynni að vera
hentugt að kaupa í þessu skyni, og ætlast stjórnin til, að
dómsmálasjóðnum og kollektusjóðnum sé varið til kaup-
anna. Óskar stjórnin tillagna stiftamtmanns um málið. Ekki
var þetta bréf birt á þinginu, þótt það kunni að hafa ver-
ið komið til landsins áður. Ekki sést það, að stiftamtmaður
hafi skrifað stjórninni um málið eftir þetta.
Alþingi var háð í skólahúsinu á Hólavelli. Ekki gerðist
á því þingi neitt markvert varðandi almenning, en nokkur
meira háttar dómsmál komu fyrir lögþingin.
Á þessu hausti fór utan Magnús lögmaður Stephensen,