Skírnir - 01.01.1930, Page 320
314
Alþingi árið 1903.
[Skírnir
áherzlan lögð á búsetu ráðgjafans í landinu sjálfu, en þess
gerist engin þörf að lýsa innihaldi þess ítarlega, því að
það var fellt við fyrstu umræðu. Aftur á móti var frum-
varp dr. Valtýs samþykkt í Neðri deild í lok júlímánaðar.
í byrjun ágústmánaðar barst sú fregn hingað, að vinstri-
mannastjórn væri þá nýkomin til valda í Danmörku. Þessi
fregn kom ekki óvænt, og þess vegna hafði aðalflutnings-
maður 10 manna frumvarpsins (Hannes Hafstein) oft vikið
að því við umræður málsins í Neðri deild, hvort ekki væri
rétt að heyra undirtektir þessarar væntanlegu nýju stjórn-
•ar, áður en málinu yrði ráðið endanlega til lykta, því að
það kynni að spilla fyrir frekari umbótum yrði þetta frum-
varp nú samþykkt, en Framsóknarmenn vildu ekki heyra
það nefnt. í Efri deild voru úrslit málsins fyrirfram auðsæ,
enda lagði meiri hluti nefndarinnar í þeirri deild til, að
frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Var það svo samþykkt
þar við aðra umræðu á fundi 9. ágúst Það var þó einn
þingmaður Framsóknarflokksins í Efri deild (Sigurður Jens-
.son, þingmaður Barðstrendinga), er var í talsverðum vafa
um, hvort ekki myndi vera rétt að láta málið óútrætt á
þinginu, en senda menn af hálfu Alþingis til að bera fram
óskir þess við hina nýju stjórn. Leiðtogar Heimastjórnar-
flokksins áttu miklar umræður við þennan þingmann, og
urðu þær til þess, að hann gerði sjálfur uppkast að samn-
ingi við þá, er hljóðaði þannig:1)
»Svo framarlega sem frumvarp það til stjórnarskipunar-
laga fyrir ísland, sem nú er samþykkt við aðra umræðu í
Efri deild Alþingis, ekki er látið útrætt á þessu þingi, þá
lofum vér undirskrifaðir þingmenn:
1. Vér lofum að vera með því að samþykkja nú á
þessu þingi þingsályktun, er komi frá báðum deild-
um Alþingis, þar sem skorað sé á stjórnina að
kalla saman Alþingi næsta ár og leggja fyrir það
1) Eiginhandar uppkastið með eiginhandar undirskriftum 11
Heimastjórnarþingmanna er i mínum vörzlum. Skjalið er ódagsett,
en var undirritað 11. ágúst, sbr. Alþingistiðindi 1903 A., dálk 104.