Skírnir - 01.01.1930, Side 321
.Skírnir]
Alþingi árið 1903.
315
frumvarp til stjórnskipunarlaga, er veiti íslandi inn-
lenda stjórn, er beri fulla ábyrgð fyrir Alþingi, og
að skipaður sé, áður en Alþingi komi saman næsta
ár, sérstakur ráðgjafi fyrir ísland, er tali og riti
íslenzku og verði hér til staðar um þingtimann
1902.
2. Vér lofum að samþykkja það, að send sé af Al-
þingi 5 manna nefnd til að fara á fund stjórnar-
innar og bera fram fyrir hana óskir þingsins. Skal
hvor af þeim tveim flbkkum, sem nú eru í þing-
inu, velja 2 menn í nefndina, hinn 5. skal kosinn
þannig, að meiri hlutinn tilnefnir 3 menn, og kýs
minni hlutinn einn af þessum þremur.
3. Takist ekki að fá stjórnina til að leggja fyrir næsta
þing frumvarp til stjórnarskipunarlaga, er að áliti
sendinefndarinnar veiti rifari umbætur á stjórnar-
högum vorum, heldur en frumvarp það, sem nú er
samþykkt við aðra umræðu í Efri deild, þá lofum
vér því að samþykkja það óbreytt í öllum grein-
um og ekki skiljast við það mál fyrr en þeim um-
bótum er framkomið, sem þar er farið fram á.
í>etta skuldbindum vér oss til að halda í öllum greinum.«
Þegar flokksmenn þingmannsins urðu þessa samdráttar
varir, lögðu þeir svo fast að honum að bregðast þeim
ekki, að hann gugnaði. Var svo frumvarpið samþykkt
óbreytt. Heimastjórnarmenn vildu þó ekki gefast alveg upp
enn; þeir höfðu þá sannfæringu, að nýja stjórnin danska
myndi vilja unna íslendingum rýmri umbóta á stjórnar-
skipuninni en fékkst í frumvarpinu. Þeir báru því fram i
Neðri deild tillögu til þingsályktunar um, að skora á stjórn-
ina að leggja fyrir næsta Alþingi nýtt frumvarp, er komi
í stað þess frumvarps, er þá hafði verið samþykkt, og sé
í því frumvarpi skipað fyrir um alinnlenda stjórn eftir því
sem frekast mætti við koma, án þess að skert væri eining
ríkisins, eða að minnsta kosti sú breyting gerð á fyrir-
ikomulagi æðstu stjórnarinnar, að hún verði falin hér bú-