Skírnir - 01.01.1930, Page 325
Skírnir]
Alþingi árið 1903.
319'
ekki á þetta. í Efri deild er það tekið fram í áliti nefnd-
arinnar, »að ætla mætti, að öllum almenningi hér á landi
sé það ógeðfellt. Samt vill nefndin ekki leggja það til, að
ákvæðið verði fellt niður, því að þá myndi sú mikilsverða
stjórnarbót, er frumvarpið veitti, fara öll forgörðum.« Nefnd-
in telur og, að það sé í rauninni form eitt, og byggir þar
á orðum ráðgjafans í athugasemdunum, að eigi geti komid
til mála, að nokkur hinna ráðgjafanna fari (í ríkisráðinu)
að skifta sér af sérmálum íslands. Við umræðurnar var
lítið minnzt á þetta atriði.
í ávarpi, sem Framsóknarflokkurinn sendi út til þjóð-
arinnar undir þinglok, 18. ágúst 1902, er meðal annars
sagt, að »enginn muni gerast svo djarfur, að reyna að
hreyfa við frumvarpinu á næsta þingi«. Þetta þótti mjög
djarflega til orða tekið, einkum af því, að um þingtímann
sjálfan hafði verið haldinn almennur fundur í Reykjavík til
þess að mótmæla þessu atriði í stjórnarskránni. Síðar um
haustið var stofnaður pólitískur flokkur, er gaf út blaðið
»Landvörn«, hei.tið eftir flokknum. Var í blaði þessu hald-
ið fram þeirri skoðun, að orðin, í ríkisráðinu, í 1. gr. frum-
varpsins gerði það alveg óaðgengilegt fyrir íslendinga, svo
að það væri glæpur að samþykkja það. Ákvæðið var talið
»uppgjöf landsréttinda«, »fullkomin innlimun« í Danmörku
o. s. frv.’) Landvarnarflokkurinn krafðist þess vegna, að
þessi orð væru felld burtu, en það var, eins og áður er
sagt, sama sem að ónýta allt málið, eins og þá stóð á.
Ýmsir leiðandi menn úr báðum flokkum rituðu móti kenn-
ingum Landvarnarmanna, og það vildi svo einkennilega til,
að tveir af yfirdómurum landsins rituðu þar hvor gegn
1) Það var nú engin ný bóla, þó að frunivörpin í stjórnarskrár-
málinu væru kölluð »innlimun«. Það urðu alltaf einhverir til, sem
voru reiðubúnir til að flagga með því nafni. 1903 vai hrópað á inn-
limun. 1909, þegar »uppkastið« kom fram, var aðalviðkvæðið, að nú
væri þó um verulega innlimun að ræða, og þetta hefir oftar verið
bergmálað. Aðeins eitt frumvarp hefir í raun og veru haft inni að
halda innlimun, og það var frumvarpið, sem lagt var fyrir þjóð-
fundinn 1851.