Skírnir - 01.01.1930, Page 326
320
Alþingi árið 1903.
[Skírnir
öðrum. Það sem annar taldi beint skaðræði, taidi hinn al-
veg hættulaust. Einkum voru það eðlilega Heimastjórnar-
menn, sem urðu að verja skoðanaskifti sín í þessu atriði.
Þeir töldu þetta aðeins fyrirkomulags-atriði, er nú væri
hættulaust, því að réttarstaða ráðgjafans íslenzka í ríkis-
Táðinu yrði eftir stjórnarskránni allt önnur en hinna ráð-
gjafanna; hann væri skiþaður eftir stjórnarskrá íslands, en
ekki eftir grundvallarlögum Dana; hann væri íslenzkur
embættismaður, launaður af landssjóði íslands; hann bæri
þar eingöngu fram sérmál íslands, en skifti sér ekkert af
dönskum málum; loks bæri hann ábyrgð fyrir Alþingi, en
ekki ríkisþingi Dana.
Á Alþingi 1903 var frumvarþið óbreytt lagt fram í
Neðri deiid og sett þar í nefnd. Hún skilaði fljótlega áliti
sínu og var öll sammála um að leggja til, að frumvarþið
yrði samþykkt óbreytt. Fjallar álitið eingöngu um rikis-
ráðssetuna; taldi nefndin hana skaðlausa af þeim ástæð-
um, sem nú voru teknar fram. Við aðra umræðu var hver
einstök grein samþykkt í einu hljóði. Þegar málið kom til
þriðju umræðu 14. júlí gat forseti þess, að fram væri kom-
in áskorun frá 159 kjósendum í Reykjavík um að fresta
málinu. Forseti fann ekki ástæðu til þess að sinna þessari
áskorun, nema einhver þingdeildarmanna bæri fram ósk
um frestun málsins, þá kvaðst hann fús að bera það undir
atkvæði deildarinnar. En til þess varð enginn. Ástæðan til
þessarar áskorunar var sú, að Landvarnarflokkurinn hafði
í þingbyrjun gert mann, Jón Jensson yfirdómara, á fund
ráðgjafans til þess að fá skýringu hans á orðunum »í rík-
isráðinu«. Sú för reyndist árangurslaus og hafði þó stjórn
Framsóknarflokksins gefið honum meðmælingarbréf.
Málið var afgreitt frá Neðri deild í einu hljóði eftir
litlar og alveg meinlausar umræður. Þegar til Efri deildar
kom var mótmælum gegn frumvarþinu þegar hreyft af
þingmanni Barðstrendinga (Sigurði Jenssyni), einmitt út af
umræddum orðum. Nefndin, sem skiþuð var í málinu, lagði
samt til í einu hljóði, að frumvarþið yrði samþykkt óbreytt.
Umræður urðu í deildinni bæði langar og grimmar gegn