Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 334
328
Álþingi árið 1918.
[Skírnir
um það, að þeir vildi taka upp sambandsmálið, ef íslend-
ingar æskti þess, en forsætisráðherra Danmerkur virðist
hafa látið líklega um þetta við forsætisráðherra íslands, og
jafnvel, að semja skyldi í Reykjavík. Og mun hinn siðar
nefndi hafa gefið í skyn, að hann ætlaði að leita hófanna
hjá íslenzkum stjórnmálamönnum um það, hvernig þeir
myndi taka í það, að ganga til samninga um málið við
fulltrúa danska ríkisþingsins hér í Reykjavík, ef því yrði
að skifta.
Þegar heim kom, þá leitaði forsætisráðherra íslands
fyrir sér hjá þingmönnum, er hann gat náð til, um það,
hvernig þeir myndi taka því, ef Danir lýsti sig fúsa til
þess að senda hingað til lands fulltrúa, er semdi við Al-
þingi um samband íslands og Danmerkur. Það mun hafa
orðið einróma svar íslenzkra þingmanna, að þeir myndi
taka því máli vel, en að eigi mundi tjóa, að hefja þær
samningagerðir á öðrum grundvelli en þeim, að ísland
yrði fullvalda ríki og eigi í fjölþættara sambandi við Dan-
mörku en konungssambandi. Þessum umleitunum forsætis-
ráðherra var lokið í febrúar eða marz 1918. 23. marz það
ár ritar hann forsætisráðherra Danmerkur (Zahle) og skýrir
honum þar frá því, að hann hafi kannað hugi manna hér
á landi um samningagerð milli Danmerkur og íslands um
allt stjórnmálasamband þeirra, og segir menn vera hlynnt-
ari þessu en hann hafi í rauninni búizt við. Segist hann
nú, er hann hafi ráðfært sig við nokkra áhrifaríka stjórn-
málamenn, þora að ráða til þess, að danska stjórnin sendi
hingað til lands tulltrúa sína til þess að semja við Alþingi.
Segist ráðherrann einnig nú vera vonbetri en í haust, er
hann ræddi málið við forsætisráðherra Dana, um góðan
árangur, einkum þar sem honum finnist sem danskir stjórn-
málamenn muni teygja sig langt til að verða við kröfum
íslendinga. Nú stóð svo á í Danmörku, að almennar kosn-
ingar áttu að fara fram fyrst í maímánuði. Forsætisráðherra
Danmerkur sendi því 2. april 1918 forsætisráðherra íslands
símskeyti þess efnis, að ekkert væri hægt að gera í mál-
inu fyrir kosningarnar. En ef ráðuneyti sitt héldi áfram