Skírnir - 01.01.1930, Page 339
"Skirni rj
Alþingi árið 1918.
333
100 þúsund áfylltar tunnur með ýmsum nánar tilteknum
skilyrðum (sjá lög nr. 8, 30. júlí 1918). Þá voru og sam-
þykkt lög um almenna dýrtíðarhjálp, þar sem sveitar- og
bæjarfélögum var heimilað frá 1. sept. 1918 til 1. sept.
1919 að verja úr sveitar- eða bæjarsjóði, auk venjulegra
útgjalda, allt að 15 kr. á hvern mann í sveitarfélaginu, til
þess að afstýra verulegri neyð af dýrtíð og matvælaskorti.
lh hluta þessara upphæða átti að endurgreiða bæjar- eða
sveitarfélagi úr landssjóði (sjá lög nr. 15, 8. sept. 1918).
Þessi heimild var þó lítt notuð, sem betur fór, því að
bjargræðisskortur varð enginn. Loks samþykkti þingið lög
um heimild landsstjórnarinnar til þess að ráða yfir skipum
þeim, sem heima áttu í landinu, og að banna sölu og út-
flutning úr landi á skepnufóðri (sjá lög nr. 23, 22. nóv.
1918). Þá voru og samþykkt lög um dýrtíðar- og gróða-
skatt.
Afskifti aukaþingsins fyrra af þessum málum halda
ekki minningu þess sérstaklega vakandi. Og þykir því ekki
sérstök ástæða til þess að lýsa þeim rækilegar. Þar á móti
verða afskifti þings þessa af fullveldismáli landsins sjálf-
sagt minnisstæð lengi. Þau afskifti munu jafnan þykja merki-
leg og afdrifarík. Og verður skýrt hér nokkuru gjörr frá
þeim.
Þingheimi öllum varð það kunnugt, að í ráði væri að
senda hingað fulltrúa frá þingi og stjórn Danmerkur til
þess að semja um samband landanna. Og það var því
vonlegt, að þingmenn beindi sérstaklega athygli sinni að
því máli. Skömmu eftir þingsetningu fluttu 11 þingmenn í
neðri deild (Bjarni Jónsson frá Vogi, Benedikt Sveinsson,
Þórarinn Jónsson, Matthías Ólafsson, Magnús Pétursson,
Jón Jónsson á Hvanná, Magnús Guðmundsson, Þorsteinn
M. Jónsson, Pétur Þórðarson, Pétur Ottesen og Hákon
Kristófersson) tillögu til ályktunar um það, að deildin skip-
aði 7 manna nefnd »til þess að koma fram með tillögur
um, hverjar ráðstafanir gera skuli til að ná sem fyrst öll-
um vorum málum í vorar hendur og fá viðurkenning full-
^veldis vors«. Samhljóða tillaga var flutt í efri deild af Karli