Skírnir - 01.01.1930, Page 349
Skírnir]
Alþingi árið 1918.
343
•önnur sameiginleg mál hyrfi úr sögunni, þá kæmi ekki til
mála, að Danmörk leyfði konungi sínum að halda konung-
dómi á íslandi. Þar á móti var meginágreiningur um hitt
atriðið, sameiginlega þegnréttinn. Dönsku nefndarmennirnir
héldu afarfast á því, að hann yrði að vera allskostar sam-
eiginlegur. Stóðu íslenzku fulltrúarnir heldur illa að vígi
um þetta atriði, því að eitt félag íslenzkra sósíalista hér
hafði samþykkt ályktun þess efnis, að þeir vildi hafa þegn-
rétt sameiginlegan í báðum löndunum og töldu þann grund-
völl undir sambandi landanna hinn eina rétta. Þessari álykt-
un var óspart haldið að íslenzku nefndarmönnunum, og
kölluðust dönsku fulltrúarnir hafa allmikinn stuðning af
henni, sem von var. Virtist svo sem þetta atriði ætlaði að
verða mikið deiluefni, og vandséð þá, nema það stæði að
öllu leyti fyrir samningum.
í sambandi við sameiginlegan konungdóm stóðu ákvæði
í 2.—3. gr. frumvarpsins um heiti konungs, ríkiserfðir, með-
ferð konungsvalds, þegar konungur er sjúkur, ólögráður
eða staddur utan ríkjanna, í öllu verulegu sem ákvæði
sambandslaganna urðu að lokum. í 4. gr. segir, að íslenzka
löggjafarvaldið setji ákvarðanir um greiðslu af hálfu íslands
til konungs og konungsættar. Þetta þótti íslenzku nefndar-
mönnunum óviðkunnanlegt orðalag og fengu því breytt
þannig, að hvort land ákvæði fyrir sig greiðslur sínar til
konungs og konungsættar, eins og nú segir í sambands-
lögunum.
2. Þá segir ennfremur í 1. gr. frumvarps dönsku full-
trúanna, að Danmörk og ísland hafi gert samning um
»sameiginlega stjórn utanríkismála (Fællesskab i Henseende
til Udenrigsstyre), sameiginlegar hervarnir (Hævdelse af
Omraadernes Ukrænkelighed), sameiginn herfána, sameigin-
lega mynt og satneigið æðsta dómsvald«.
Um einstök atriði voru svo nánari ákvæði í öðrum
greinum, sem ástæða er til að taka til athugunar.
a. í viðbót við grundvallarákvæði frumvarpsins um
sameiginlegan þegnrétt þótti dönsku fulltrúunum nauðsyn
bera til þess að setja fyrirmæli (5. gr.) um fullkomið jafn-