Skírnir - 01.01.1930, Page 357
Skirnir] Alþingi árið 1918. 351'
átti meðal annars að koma fram fullrétti landsins og jafn-
ræði við Danmörku.
b. Merkasta ákvæði frumvarpsins var þó í 17. gr.
þess. Eins og fyrr segir, átti eftir frumvarpi dönsku nefnd-
armannanna, auk konungssambandsins, sameiginlegur þegn-
réttur, sameiginleg utanríkismál, hervarnir og herfáni, land-
helgigæzla og jafnréttisákvæðin að verða óuppsegjanleg,
og ísland hefði því orðið Danmörku bundið með þeim svo
lengi sem ekki hefði öðru vísi samizt. En eftir 17. gr.
frumvarps íslenzku nefndarmannanna átti hvort landið um
sig eftir tiltekið árabil að geta krafizt endurskoðunar á
sambandsgjörningnum. Ef eigi kæmist á nýir samningar
innan 2 ára, þá átti að mega segja sambandsgjörningnum
og sambandinu milli landanna slitið, ef 3,4 greiddra at-
kvæða Alþingiskjósenda í öðru hvoru landinu hefði greitt
atkvæði með, enda hefði 3U kjósenda tekið þátt í atkvæða-
greiðslunni. Þetta hafði áður verið nokkuð rætt á nefndar-
fundi, án þess að dönsku fulltrúarnir hefði þó látið nokk-
uð ákveðið uppi um afstöðu sína til þessa atriðis. En ís-
lenzku nefndarmennirnir munu hafa verið öruggir í því að
ganga ekki að neinu samkomulagi um nokkur sammál
milli íslands og Danmerkur, er eigi mætti segja upp, nema
um konungdóminn. Þegar dönsku íulltrúarnir höfðu lesið
yfir frumvarp þetta, sögðu þeir, sem satt var, að eftir
frumvarpinu væri löndin eigi með öðru saman tengd en
konungdóminum, sem jafnvel gæti þó líka fallið niður eftir
17. gr. með einhliða yfirlýsingu annars hvors aðiljans. Lét-
ust dönsku nefndarmennirnir eigi mundu geta lagt til við
rikisþing Dana og stjórn, að gengið yrði að slíku. Var nú
um málið rætt nokkuð, og var sýnt, að eigi mundi saman
ganga á þeim fundi. Jafnvel sumir nefndarmanna munu þá
hafa óttast það alvarlega, að samningatilraunirnar mundi
verða algerlega árangurslausar. Var þó stungið upp á því
af hálfu íslendinganna sem nokkurs konar þrautaráði, að
undirnefnd yrði sett til þess að reyna, hvort ekki mætti
takast að gera úr hinum tveim frumvörpum dönsku og ís-
lenzku nefndarmannanna nýtt frumvarp, er samkomulag