Eimreiðin - 01.01.1974, Blaðsíða 7
EIMREIÐIN
rópu eða Bandaríkjunum, höfðu raunar farið á fund sálufé-
laga sinna í Chile í nokkurn veginn sama tiigangi og jafnaldr-
ar þeirra, sem gefizt höfðu upp við skólanám, höfðu farið á
þumalfingrinum til Nepal í þeirri von að kynnast þar Paradís
í framkvæmd. Þegar byltingin var gerð i september, voru, að
sögn herforingjastjórnarinnar, um 15.000 útlendingar af öllu
tagi í Chile og þeir veittu „hinni sósíalistísku hyltingu“ virkan
stuðning — stundum með því að beita ofbeldi.
Þessir hópar eða einstaldingar, sem höfðu því sérstakan
áhuga á gangi mála, voru reiðubúið kerfi til alþjóðlegrar áróð-
ursherferðar, þegar Allende var allur. En viðbrögðin við valda-
ráninu, sem varð mönnum víða slíkt áfall, að stappaði nærri
móðursýki, náðu langt út fyrir raðir slíkra hópa, sem höfðu
þegar tekið afstöðu, og jafnvel til venjulegra, frjálslyndra
manna og sósialdemókrata í hinum vestræna heimi. Þeim
fannst, ekki síður en hinum sjálfskipuðu hyltingarmönnum,
að skært heimsljós vonarinnar hefði verið slökkt í Santiago,
°g allt frá Washington til Rómaborgar — um Paris, Bonn og
Eondon — heyrðust angistarfull óp, „Siðlaus glæpur!“
Gremjuópin í Bretlandi voru dæmigerð — og heyrðust sam-
7