Eimreiðin - 01.01.1974, Blaðsíða 47
EIMREIÐIN
með því gáfur þess og frelsisþrá, — með því að vekja póli-
tíska vitund þess.
Reynslan hefur sýnt oss, svo að ekki verður á móti mælt, að
fræðsla og þjóðleg menningararfleifð eru kveikjan að póli-
tískri vitund manna. Vér vitum, hvernig leiða má alþýðu þess-
ara landa til þess að verða ein þjóð og hvernig slík þjóð er
búin undir framfarir.
Vér þurfum hins vegar að velta því fyrir oss, hversu mennt-
un og fræðsla getur brotið skjöld eigingirninnar, rofið einsýni
hinna auðugu, breytt hugmyndaheimi og félagslegri vitund
þeirra, leitt til kerfisbreytingar jafnt í félags- sem efnaliags-
málum.
Áður en ég tek afstöðu til þessa, — og ég vona, að svar mitt
veki yður til umhugsunar og umræðu, — ætla ég að leyfa mér
a® fjalla lítils háttar um, hvers vegna þörf er á félagslegum
umbótum í Evrópu og Norður-Ameríku. Eigi skjót og róttæk
breyting sér ekki stað í gnægtaþjóðfélögum Vesturlanda, er
harátta vor fyrir slíkum umbótum í þriðja heiminum dauða-
dæmd.
47