Eimreiðin - 01.01.1974, Blaðsíða 23
EIMREIÐIN
i hópi menntamanna, bæði karlar og konur: Þeir voru meira
eða minna berskjaldaðir fyrir hroðalegustu óðaverðbólgu, sem
þjóðin bafði nokkru sinni fengið að kynnast.
Sumir, sem liafa reynt að bera í bælifláka fyrir Allende, bafa
haldið því fram, að ýkt sé. hve verðbólgan hafi verið geigvæn-
leg, eða hún liafi að minnsta kosti verið litlu verri en algengt
hefur verið i Chile og fleiri löndum Suður-Ameriku. Sannleik-
urinn er sá, að hún var miklu ofboðslegri en algengt er í þessu
efni þar í álfu. Aðeins níu mánuðum eftir að Allende komst
til valda, — þegar ég heimsótti landið i fyrsta sinn, -— hafði
gjaldmiðill þess, escudo, þegar fallið úr 20 i 40 miðað við Banda-
ríkjadollar á liinum frjálsa (svarta) markaði. Þegar ég kom
þangað öðru sinni, 18 mánuðum siðar, taldi ríkisstjórnin sjálf,
að verðbólguvöxturinn næmi 130% á ársgrundvelli, en jafn-
framt jókst seðlaveltan um 10% á mánuði og escudo var fall-
mn í 350 á móti Bandaríkjadollar á svörtum markaði. í ágúst
1973 var verðbólguvöxturinn orðinn sem svaraði 323% árlega
og jók hraðann óðfluga, en dollar jafngilti þá 2.000 escudos,
— svo að raunverulegt gengishrun á tæpum þrem árum nam
10.000 — tíu þúsund — prósent!
Ekki nægir að kenna þessa hörmulegu þróun handahófs-
kenndum eða illkvittnislegum ástæðum eins og — aftur vitna
eg í röksemdir, sem fram voru bornar — lækkandi vcrði á
kopar á heimsmarkaðnmn, eðlilegum erfiðleikum við að halda
óþreyttri framleiðslu í iðnaði eða landbúnaði á tímabili rót-