Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 9
Skýrsla
✓
um störf Búnaðarfélags Islands 1994
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins, sem kjörin var a Búnaðarþingi
1991, er þannig skipuð: Jón Helgason, alþingis-
maður í Seglbúðum, formaður, Magnús Sig-
urðsson, bóndi, Gilsbakka, varaformaður, Her-
mann Sigurjónsson, bóndi í Raftholti, ritari,
Egill Jónsson, bóndi og alþingismaður á Selja-
völlum, og Tómas Gunnar Sæmundsson, bóndi
í Hrútatungu.
Varamenn í stjóm eru: Ágúst Gíslason, bóndi,
Isafirði, Jón Hólm Stefánson, bóndi, Gljúfri,
,, Egill Biarnason, ráðunautur á Sauðárkróki, Sig-
Jonas Jónsson , . , ,,,, , , .
urður Þorolfsson, bondi, Innn-Fagradal og
Ágústa Þorkelsdóttir, bóndi á Refsstað. Endur-
skoðendur félagsins eru: Bjarni Guðráðsson, bóndi í Nesi, kjörinn af Búnaðarþingi,
og Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri, skipaður af landbúnaðarráðuneytinu.
Stjórnarfundir voru 20 á árinu og bókaðar voru 186 ályktanir og afgreiðslur
mála. Viðræðunefnd stjóma Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda,
um hugsanlega sameiningu samtakanna, sem tók til starfa í júlí 1993 héll 6 fundi
á tímabilinu frá áramótum og til Búnaðarþings 1994. Henni var falið að starfa
áfram eftir afgreiðslu Búnaðarþings á rnálinu og hélt hún þá 10 fundi áður en
Auka-Búnaðarþing kom saman 26. ágúst. (Sjá tíðindi frá Auka-Búnaðarþingi í
Búnaðarriti 1994 bls. 199). Eftir staðfestingu aðalfundar Stéttarsambands bænda
og Auka-Búnaðarþings á samkomulagi um sameiningu félaganna, voru sömu
menn og voru í viðræðunefndinni tilnefndir í samstarfsnefnd til að annast
undirbúning sameiningar samtakanna 1. janúar 1995. Samstarfsnefndin hélt 6
lundi frá því hún var tilnefnd og til áramóta. En þessar nefndir skipuðu Jón
Helgason, Gunnar Sæmundsson og Hermann Sigurjónsson frá Búnaðarfélagi
Islands og Haukur Halldórsson, Guðmundur Stefánsson og Þórólfur Sveinsson
li'á Stéttarsambandi bænda.
7