Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 141
endatölvukerfis og einmenningstölvunetsins. í öðru lagi að endurbæta
jarðabókarforritið sem hefði myndræna framsetningu og ynni á gögnum á
AS/400 tölvunni. I þriðja lagi gerð forrits sem yrði nokkurs konar tölvuvædd
handbók bænda. Við því verkefni tók Tölvudeild BÍ í samráði við Stefán
Skaftason, formann Hagsmunafélags héraðsráðunauta, eftir að Jón Erlendsson
hjá Upplýsingaþjónustu Háskóla Islands hafði skilað af sér verkinu sem var talið
ófullnægjandi hvað varðaði notkunargildi og þróunarumhverfi.
Það kom í ljós í 1. verkhluta verkefnisins að sú tækni sem ráða átti við gagna-
flutning milli AS/400 og tölvunetsins var mjög dýr og vandmeðfarin þannig að
2. lið verkefnisins, sem hópurinn lauk við að öðru leyti, var slegið á frest. Eg fól
síðan Valdimari Tryggvasyni að endurgera hina tölvuvæddu handbók í sumar.
Ritnefnd hefur verið skipuð til að ritstýra efni handbókarinnar sem í eru Óttar
Geirsson formaður, Eiríkur Loftsson, ráðunautur í Skagafirði og undimtaður.
Nefndin er búin að gera drög að efni og verður fyrstu útgáfu forritsins dreift í
upphafi ársins. Tilgangurinn með þessari handbók er að gera héraðsráðunautum
o.fl. auðveldara með að nálgast hagnýtar upplýsingar um landbúnað.
Björn Stefánsson leitaði til BI um gerð forrits til skráningar og útreiknings
ákveðinnar aðferðar við atkvæðagreiðslu (raðgildi) sem Björn hefur rannsakað.
Valdimar Tryggvason samdi forrit í Visual Basic og var það fyrst notað við
úrvinnslu atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi á Vesturlandi.
Tölvusamskipti. Margs konar tölvusamskipti verða æ ríkari þáttur í tölvu-
vinnslu. Við eflingu bændasamtakanna skiptir sköpum að auka og bæta tölvusam-
skipti búnaðarsambanda og bænda við miðlægt tölvukerfi samtakanna. Þau eru
orðin margvísleg nú þegar eins og ég hef áður greint frá í starfsskýrslum. A árinu
1994 var X.25 lína inn á gagnanet Pósts og síma komið í gagnið að fúllu með
tengingu með pakkaldi við AS/400 fjölnotendatölvu. Með tilkomu hennar geta nú
fimm búnaðarsambönd verið tengd samtímis AS/400 tölvunni. í ár skráðu
Búnaðarsambönd Eyjafjarðar, Suðurlands, Borgarfjarðar, Skagfirðinga, A,-
Húnavatnssýslu, V.-Húnavatnssýslu og A.-Skaftafellsýslu forðagæsluskýrslu
heima í héraði og greiðir Búnaðarfélag Islands þeim fyrir hverja uppgerða skýrslu.
Seint á árinu var sfðan gerð tilraun í Bsb. Eyjafjarðar með skráningu á sæðin-
gaskýrslum f fjartengingu. Sæðingamenn geta enn fremur flett upp í skráðum
skýrslum. Búnaðarsainbönd geta nú fíett upp í öllu nautgriparæktarskýrsluhaldinu
sem þau nota aðallega til yfírferðar á skýrsluhaldinu. Þá hafa búnaðarsamböndin
aðgang að þjóðskrá í fjartengingu. Búnaðarsamböndin voru tengd AS/400 tölvunni
í fjartengingu í samtals 370 klukkustundir á árinu. Eyfirðingar voru tengdir í 161
klst. (44% af heildartengitíma), Skagfirðingar og Borgfirðingar í um 47 klst.
(13%), Sunnlendingar í um 31 klst. (8,5%) og aðrir skemur.
Tenging tölvupóstkerfisins við Isgáttina, sem ég vék að fyrr, stórbætir
ntöguleika allra tölvupóstnotenda til samskipta - bæði við aðila hér á landi sem
139