Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 66
Nautauppeldisstöðin í Þorleifskoti
Sigurmundur Gutlbjörnsson
Árið 1994 voru teknir inn á stöðina 59 kálfar
og skiptast þeir þannig eftir landshlutum: af
Vesturlandi 15, Norðurlandi 14, Austurlandi 1
og Suðurlandi 29. Nautsfeður voru þessir á
S árinu: Bassi 86021, 21 sonur, Þráður 86013, 13
synir, Þegjandi 86031, 9 synir, Listi 86002, 7
synir, Austri 85027, 6 synir, Hólrnur 81018, 2
synir og Skíði 85002, 1 sonur. 27 naut urðu
ársgömul á árinu og var meðalþungi þeirra 335
kg og brjóstmál 160 cm. 41 naut var flutt til
sæðistöku að Nautastöðinni á Hvanneyri. 21.
janúar fóru 14 naut, 20 maí fóru 6 naut, 2. sept-
ember fóru 10 naut og 22. desember fóru 11
naut. 19 naut voru felld af ýmsum orsökum.
Störf mín við stöðina voru með svipuðum hætti og undanfarin ár. Fóðrun gekk vel,
heilsufar var yfirleitt gott nema 2 kálfar drápust úr gamaflækju. Nautauppeldisstöðin
er sóttvamarstöð og þarf að fara eftir settum reglum. Þar af leiðandi þarf allt hreinlæti
að vera í góðu lagi. Kálfakassa sem notaðir em til flutnings og stíur, bæði í móttöku
og sóttkví þarf að hvítþvo og sótthreinsa eftir hvem kálf sem tekið er á móti. Hálfs-
mánaðarlega em allir gripir eins árs og yngri vigtaðir svo og fóðrið í þá, með tilheyr-
andi skýrsluhaldi. Við 60 daga aldur er hver gripur veginn þrjá daga í röð. Þetta er
endurtekið þegar skepnumar em eins árs. Er þetta gert til þess að fá nákvæmari vigt.
Eg sé um hey- og fóðurblöndukaup og móttöku á því, einnig um viðhald á
tækjum og búnaði. Kálfa af Suðurlandi hef ég sótt sjálfur. Köfnunarefnistankur
er í minni vörslu og annast ég sæðisdreifingu til frjótækna á Suðurlandi. Fundi
nautgriparæktarnefndar hef ég setið á árinu.
Samstarfsmaður minn er Þórfríður Soffía Haraldsdóttir og þakka ég henni vel
unnin störf. Einnig vil ég þakka Diðriki Jóhannssyni og Jóni Viðari Jónmunds-
syni ánægjulegt samstarf.
64