Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 136
Nýr hugbúnaður sem keyptur var á árinu: Visiual Basic þróunarhugbúnaður
og fleiri forritasöfn tengd honum, MS Office, 1 eintak, MS Access 2,0; Lykla-
Pétur 2,14 og Lotus Organizer. Nokkrar einmenningstölvur voru keyptar á árinu
fyrir starfsfólk - allar með örgjörvunum 80486. Geilsaprentari að gerðinni HP
printer 4M var keyptur ásamt sérstökum prentstjóra.
AS/400. A sama hátt og árið hófst með hruni á tölvuneti félagsins má segja
að árið 1994 hafi endað með hvelli. Þegar verið var að koma upp kælikerfi í
tölvuveri félagsins í nóvember varð það slys að of há spenna hljóp í aðaltölvuna,
sem Búnaðarfélagið og Framleiðsluráð reka saman, með þeim afleiðingum að
hún eyðilagðist að mestu. Tjónið er metið í milljónum. Málið er nú tryggingamál
(greiðist væntanlega af þeim). Óhappið varð á föstudegi og Nýherji hf.,
þjónustufyrirtæki AS/400 tölvukerfisins, brást skjótt við og á mánudegi þegar
fólk mætti til vinnu, var tölvukerfið komið í gang að nýju þó svo panta hafi þurft
hluti að utan. Nýr diskur ásamt nauðsynlegum fylgihluti (hatti) var keyptur undir
lok ársins og við það fór diskarými úr 3,8 í 4,8 GB (4800MB). Einnig var
vinnsluminni stækkað úr 24MB í 32 MB. Uppsetning disksins og minnisins fer
fram í byrjun ársins 1995.
Hugbúnaðargerð.
Sauðfjárrækt. Þróun á Fjárvís var haldið áfram á árinu. Útgáfa 1,0 kom út í
febrúar og lauk þar með grunnhluta forritsins eins og ég rakti í síðustu starfs-
skýrslu minni. A árinu stóð ég fyrir mörgum kynningum á Fjárvís í samvinnu við
búnaðarsamböndin í Borgarfirði, Skagafirði, Vestfjörðum, V.-Húnavatnssýslu,
Eyjafirði, Suðurlandi, Snæfellsnesi og A.-Skaftafellssýslu. Einnig skrifaði ég
grein í Frey um Fjárvís og hvatti bændur til þátttöku. Á landbúnaðarsýningunni
Auðhumlu ‘94 í sumar kynnti ég forritið fyrir áhugasömum sýningargestum all-
flesta dagana sem sýningin stóð yfir. Hjálmar Ólafsson, forritari og bóndi í
Kárdalstungu, Kárdal, hefur sem fyrr unnið að forritsgerðinni, samkvæmt kröfu-
lýsingu Búnaðarfélagsins, af sinni einstöku alúð.
Að beiðni minni skipaði búnaðarmálastjóri samráðsnefnd um forritun í
sauðfjárrækt í sumarbyrjun. Eg tel að samráð bænda, búnaðarsambanda og
Búnaðarfélagsins skipti sköpum hvort forrit hlýtur góðar viðtökur þeirra sem for-
ritið er samið fyrir þ.e. bænda eða ekki. Það auðnaðist að fá til liðs við þetta
verkefni áhugasamt fólk en nefndina skipa: Jón Viðar Jónmundsson búffjár-
ræktarráðunautur, Ólafur R. Dýrmundsson, landnýtingar- og sauðfjárræktar-
ráðunautur, Sólrún Ólafsdóttir, bóndi á Kirkjubæjarklaustri II, Gunnar
Þórarinsson, héraðsráðunautur V.-Húnavatnssýslu auk undirritaðs. Nefndin kom
til síns fyrsta og eina fundar á árinu 21. júní þar sem gerð voru drög að krö-
fulýsingu að útgáfu 1,5 af Fjárvís. Þessi kröfulýsing var síðan lögð til grundval-
lar þegar undirritaður samdi, fyrir hönd Búnaðarfélagsins, við Hjálmar Ólafsson
að forritun að útgáfu 1,5. Jón Viðar og undirritaður funduðu með Hjálmari um
134