Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 79
fyrir sig. Hrossin voru því tvídæmd og stærðfræðileg úttekt gerð á niðurstöðum
að forskrift Jóns Viðars Jónmundssonar kynbótafræðings. Þótti þetta takast vel
og öryggi dóma betra en stærðfræðileg líking gerði ráð fyrir. Sýnir þetta að þeir
dómarar við kynbótadóma, sem mesta hafa þjálfunina en þeir völdust í þetta, eru
starfi sínu vaxnir. Það kom í ljós að ekki skiptir máli hvort dómarar starfa einir
og gefa einkunnir óháðir öðrum eða vinna saman í dómnefnd og taka sameigin-
legar ákvarðanir. A hvorri aðferðinni sem á þarf að halda í framtíðinni er gott að
vita hve jafngóðar þær eru.
Ungfolaskoðun var með minnsta móti enda ekki unnið neitt fyrir Stóðhesta-
stöðina við það.
Fjalla-Blesafélagið heimsótti ég 21. apríl, skoðaði hross og lagði til að tveir
ungfolar 3ja vetra, báðir synir Anga 1035 og mæður dætur Núpakots-Blesa 577,
yrðu ekki vanaðir fyrr en eftir einhverja tamningu og ákváðu eigendur þeirra
Glanna frá Ytri-Skógum og Sprota frá Eyvindarhólum að koma þeim á Stóð-
hestastöð næsta haust til meðferðar, sem og varð.
Þennan dag sat ég aðalfund félagsins og ræddi um nýskoðuð hross og fleira
viðkomandi ræktunarstarfi félagsmanna. Nær allir félagar 13 talsins sóttu fund.
Arsþing LH var haldið á Hvolsvelli 28.-29. október og sat ég það. Þetta var
málefnalegt og rólegt þing og tóku lyfjamál drjúgan tíma þess, vel undirbúið
mál, og orð í tíma töluð.
Hrossarœktamefnd, nýskipuð af Búnaðarþingi, hélt fundi 3.-4. maí og 21.
des. Eg er varaformaður og ritari nefndarinnar, atkvæðislaus. Samkvæmt
upphaflegu samkomulagi að tillögu búnaðarmálastjóra skyldum við tveir ráðu-
nautar í hrossarækt skiptast á að vera formenn nefndarinnar og gekk það í byr-
jun. Við tilnefningu gaf ég eftir á sl. vetri minn rétt, að þessu sinni. Um þetta mál
vissu nefndarmenn frá upphafi og á þessum fyrsta fundi var gerð fyrirspurn um
óvænta skipan formannsins. Á vorfundi hrossaræktarnefndar í maí, var síðari
dagur haldinn í Gunnarsholti, þar sem ungfolar voru skoðaðir nákvæmlega og
tamdir folar dæmdir af dómnefnd. Voru margir folar sendir burt af stöðinni, eða
5 yngri (2-3 vetra) og 6 eldri (4-5 vetra) sumir þeirra eldri, vegna þess að þeir
leigðust ekki til notkunar sl. sumar. Afsetning var líka mikil í fyrra, úrbóta er þörf
(betra val inn).
Fundir. Auk fyrrnefndra árlegra funda sótti ég ýmsa félags- og fræðslufundi
víða um land þar sem ég flutti erindi og var auk þess oft með myndasýningar,
ýmist litskyggnur eða video-myndir og fékk góða fundarsókn og viðtökur um
efni það er flutt var. Alls voru þeir fundir 18 talsins.
Samráðsfund kynbótadómara sat ég á Hólum 14.-15. apríl og Ráðunautafund
í Reykjavík 10. febrúar.
77