Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 89
Hrossarœktarnefnd Búmaðarfélags íslands. I samræmi við búfjárræktarlög
var kjörið í búfjárræktamefndir á Búnaðarþingi 1994. Hrossaræktarnefnd er nú
þannig skipuð að úr hópi bænda, aðalmenn kjörnir af Félagi hrossabænda,
staðfest af Búnaðarþingi: Einar E. Gíslason, Syðra-Skörðugili og Þórir ísólfsson,
Lækjamóti. Fulltrúi tilnefndur af Landssambandi hestamannafélaga, kjörinn af
Búnaðarþingi: Skúli Kristjónsson, Svignaskarði. Varamenn kjörnir af Félagi
hrossabænda, staðfest af Búnaðarþingi: Bergur Pálsson, Hólmahjáleigu og Bima
Hauksdóttir, Skáney. Varamaður tilnefndur af Landssambandi hestamanna-
félaga, kjörinn af Búnaðarþingi: Sigbjörn Björnsson, Lundum. Aðalmenn úr
hópi ráðunauta kjörnir á Búnaðarþingi: Víkingur Gunnarsson, Guðmundur
Sigurðsson og Jón Vilmundarson. Varamenn úr hópi ráðunauta: Brynjólfur
Sæmundsson, Jón Finnur Hansson og Anna Bryndís Tryggvadóttir. Formaður er
Kristinn Hugason en varaformaður Þorkell Bjarnason.
Samkvæmt venju kom hrossaræktarnefnd tvisvar saman til fundar þetta árið.
Vorfundur, sem var 13. fundur nefndarinnar, fór fram í Bændahöllinni og í
Gunnarsholti 3. til 4. maí og haustfundur fór fram í Bændahöllinni 21. desember.
Fjölmörg mál komu til umræðu og hlutu afgreiðslu á nefndarfundunum en þar
sem þau tengjast hinum ýmsu þáttum starfsins er ekki ástæða til að rekja dagskrá
nefndarfundanna sérstaklega hér. Nema hvað hér á eftir verður gerð sérstök grein
fyrir framkvæmd og niðurstöðum dómatilraunar sem gerð var á árinu. Starfið í
hrossaræktarnefnd gekk vel eins og verið hefur síðustu ár.
I framhaldi af umræðu bæði úti á meðal hestafólks og í nefndinni, sjá t.d.
síðustu starfsskýrslu mína, samþykkti hrossaræktarnefnd á vorfundinum 1994 að
efna til dómatilraunar í ágúst 1994, fengist til þess fjármagn, og yrði Jóni Viðari
Jónmundssyni kynbótafræðingi falið að stjórna tilrauninni. Einkum yrði lögð
áhersla á að leggja mat á hugsanlegan mun á framkvæmd dóma við sjálfstætt mat
einstakra dómara og sameiginlegan dóm dómara í dómnefnd. Skemmst er frá því
að segja að búnaðarmálastjóri heimilaði að tilraunin færi fram og Jón Viðar var
fús til að taka að sér skipulag og stjórnun á framkvæmd enda hafði fyrirfram
verið rætt um það við hann. Tilraunin fór fram í tengslum við síðsumarsýning-
una á Gaddstaðaflötum og stóð yfir dagana 4. til 5. ágúst en þann 3. fórum við
Jón Viðar austur á Gaddstaðallatii' til að undirbúa alla framkvæmd. Steinþór
Runólfsson sýningarstjóri hafði svo alla ábyrgð á framkvæmd tilraunarinnar á
staðnum. I tilrauninni tóku þátt sex dómarar og voru þeir valdir til þátttöku er
flest hross höfðu dæmt á sýningarárinu.
Jón Viðar gerði tilraunina upp og samdi skýrslu um niðurstöðurnar sem hann
kynnti fyrst á samráðsfundi fagráðs í hrossarækt og síðan á haustfundi
hrossaræktarnefndar, þessum fundargerðum báðum hefur verið dreift víða en auk
þess verður skýrsla Jóns birt í Hrossaræktinni. Helstu ályktanir Jóns út frá
niðurstöðum tilraunarinnar voru eftirfarandi:
I. Nákvæmni í dómum virðist almennt vera mjög mikil.
87