Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 108
landbúnaðarins. Ákveðið hefur verið að haida ráðstefnuna 24. mars næstkom-
andi í Bændahöllinni.
I nóvembermánuði var mér síðan boðið að sækja ráðstefnu í Noregi sem köl-
luð var Fiskeoppdrettersmötet 1994 og var hún haldin á Landbúnaðar-
háskólanum á Ási. Þetta er ráðstefna sem haldin er sérstaklega til að miðla
helstu niðurstöðum norskra vísindamanna til fiskeldismanna, leiðbeinenda, og
annarra sem koma nálægt fiskeldi í Noregi. Er ég mjög þakklátur þessu boði
Norðmanna og gott er að finna hve opnir þeir eru og vilja miðla sínum
niðurstöðum til okkar og annarra bræðraþjóða á Norðurlöndum.
Mættu fleiri taka þá sér til fyrirmyndar. Ég vil hér með þakka stjórn
Búnaðarfélags Islands fyrir að gera mér kleift að sækja þessa ráðstefnu.
I desemberbyrjun tók ég síðan á móti norskum eldismönnum og fulltrúum
fóðurfyrirtækisins Skretting sem áhuga höfðu á að kynna sér íslenskt fiskeldi.
Eins og fyrri ár reyndi ég að heimsækja sem flestar eldisstöðvar, bæði til að
leiðbeina samkvæmt beiðnum, en einnig til að viðhalda persónulegu sambandi
við framleiðendur í greininni. Því miður gat ég ekki heimsótt allar þær stöðvar
sem ég hefði viljað bæði vegna anna og vegna fjárskorts.
Ég vann einnig, ásamt Vilborgu Einarsdóttur, að undirbúningi sjónvarpsþát-
ta um fiskeldi, þó aðallega bleikjueldi, sem vonandi verður sýndur í sjónvarpinu
á vordögum.
Auk starfa minna á árinu sem fiskeldisráðunauts fyrir félagið kom ég nokkuð
að vinnu sem er meira félagslegs eðlis en fiskeldisfagleg.
I ársbyrjun fór búnaðarmálastjóri þess á leit við mig að ég tæki að mér auk
minna hefðbundnu starfa að sitja í kynningarnefnd sem hefði það verkefni að
kynna starfsemi leiðbeiningaþjónustunnar í landbúnaði og Búnaðarfélags
Islands. Aðrir í nefndinni voru Jón B. Lorange og Ólafur Dýrmundsson. Eftir
samráð við við aðra nefndarmenn, búnaðarmálastjóra og aðra starfsmenn gerði
ég kynningarefni í formi skyggnusýningar og síðar hluta af því efni sem
glærusýningu. Haldnar voru nokkrar kynningar í Bændahöllinni, m.a. á for-
mannafundi búnaðarsambandanna, og einnig var sérstök kynning fyrir land-
búnaðarnefnd Alþingis. Þetta efni hefur einnig verið notað á fúndum út á landi,
notaði ég það t.d. við kynningu á aðalfundi Búnaðarsambands Snæfellinga.
Glærurnar hafa einnig verið notaðar á fundum forystumanna Búnaðarfélags
Islands og Stéttarsambands bænda, víða um land, þar sem kynntar voru hug-
myndir um sameiningu þessara samtaka.
Stjórn Búnaðarfélagsins óskaði þess síðar að ég tæki að mér formennsku í
sýningarnefnd Búnaðarfélagsins (eins og hún var kölluð). Aðrir í nefndinni voru
Jón B. Lorange, Magnús Sigsteinsson og Margrét Jóhannsdóttir. Hlutverk þess-
arar nefndar var að meta þær óskir sem höfðu borist stjórn Búnaðarfélagsins um
þátttöku í ýmsum landbúnaðarsýningum. Var að lokum ákveðið að taka þátt land-
búnaðarsýningunni Auðhumla ‘94, sem haldin var að Hrafnagili í Eyjafjarðar-
106