Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 92
Samskipti við útlönd. Sú þróun aukinna samskipta við útlönd og vaxandi
undirtekta við sjónarmið okkar Islendinga viðvíkjandi kynbótamálunum sem
verið hefur við lýði undanfarin ár gekk hratt á árinu og margt ánægjulegt henti á
þeim vettvangi.
í upphafi ársins fundaði nefnd sú af og til sem fer með framkvæmd samskip-
tanna við FEIF, alþjóðleg samtök unnenda íslenska hestsins, en ég sit í nefndin-
ni fyrir hönd Búnaðarfélags íslands. Var þar fjallað um störf íslendinga í rækt-
unarráði FEIF en á árinu hætti Víkingur Gunnarsson héraðsráðunautur störfum í
ræktunarráðinu þar sem hann hvarf utan í haust til náms á Bretlandseyjum og tók
Jón Vilmundarson héraðsráðunautur við af honum. Einnig var fundað í FEIF-
nefndinni um undirbúning 25 ára afmælis samtakanna sem haldið var með
viðhöfn úti í Viðey í tengslum við aðalfund FEIF sem haldinn var á Hótel Sögu
4. júlí. Síðan var fundað í nefndinni í tilefni að komu Maritar Jónsson þáverandi
forseta FEIF og Anne Marie Quarles ræktunarfulltrúa FEIF hingað til lands. Sat
ég m.a. fund með þeim í landbúnaðarráðuneytinu ásamt Sveinbirni
Dagfinnssyni, þáverandi ráðuneytisstjóra, og Sveinbirni Eyjólfssyni deildar-
stjóra þar sem drög voru lögð að yfirlýsingu þess efnis að Island væri móðurland
íslenska hestsins. Þessi yfirlýsing, Joint Declaration on the Breeding of
Icelandic Horses, sem formlega var staðfest þann I. apríl með undirskrift land-
búnaðarráðherra, búnaðarmálastjóra, forseta FEIF og ræktunarfulltrúa FEIF er
mjög mikilvæg fyrir stöðu íslenskrar hrossaræktar ei'tir tilkomu Evrópu-
samninganna.
Snemma á árinu tóku Norðmenn íslenska dómkerfið upp alveg óbreytt og sá
Búnaðarfélag íslands um kynbótasýningu í vor úti í Noregi eins og um hefur verið
getið. Frekara samstarf við Norðmenn er á döfinni, jafnvel þannig að við komum
til með að sjá um skýrsluhald fyrir þá, útreikning kynbótamats og fleira. Hafa og
fleiri þjóðir lýst áhuga á slíku þótt ekkert hafi enn verið afráðið í því sambandi.
Mætti ég á fund í Noregi þann 11. október þar sem um þessi mál var fjallað. Stóð
Norsk Hástecenter fyrir fundinum. Nú í haust tóku Danir hliðstæða ákvörðun og
Norðmenn varðandi breytingar á dómkerfi en þeir ætla þó að viðhalda viljadómi
í reið sem við höfum aflagt fyrir löngu. Fleiri þjóðir eru að íhuga stórbreytingar á
dómkerfi sínu í átt til okkar kerfis. Við það var ég mjög var á aðalfundi rækt-
unarráðs FEIF sem ég sat með Jóni Vilmunarsyni, í Hollandi dagana 18. til 20.
nóvember sl. Telja má að tvennt sem gerðist á síðasta ári og er enn ógetið hafi flýtt
þessari þróun. Annað er alþjóðlegt námskeið fyrir kynbótadómara sem haldið var
á Hólum 5. til 7. júlí. Veitti ég því námskeiði forystu ásamt Víkingi Gunnarssyni
og Anne Marie Quarles. Hitt var koma tveggja erlendra dómara hingað til lands
sem fylgdust með dómstörfum á síðsumarsýningum norðanlands og sunnan. I
framhaldi af komu þessara dómara, Barböru Frische frá Þýskalandi og Jóhannesar
Hoyos frá Austurríki, llutti ég erindi á aðalfundi ræktunarráðs þýskra hrossa-
ræktarmanna, þann 29. október. Var það ákafiega fjölsóttur og skemmtilegur
90