Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 20
Búfrœðslunefnd. Jón Hólm Stefánsson bóndi á Gljúfri og Magnús Ágústsson
ráðunautur eiga sæti í nefndinni, kosnir af Búnaðarþingi.
Stjórn vinnueftirlits ílandbúnaði. Jónas Jónsson á sæti í stjórninni, tilnefndur
af stjórn BÍ.
Stjórn Hagþjónustu landbúnaðarins. Jón Hólm Stefánsson, bóndi á Gljúfri á
sæti í stjóminni en Ketill A. Hanneson er varamaður, tilnefndir af stjórn BI.
Stjórn Stóðhestastöðvar ríkisins í Gunnarsholti. Fulltrúar BI í stjórninni eru
Þorkell Bjarnason ráðunautur og Steinþór Gestsson á Hæli.
Stjórn Hrossakynbótabúsins á Hólum í Hjaltadal. Kristinn Hugason ráðu-
nautur á sæti í stjórninni tilnefndur af stjórn BI.
Dýravenularnefnd - Dýraverndarráð. Með breytingu á lögum um dýravernd
sem samþykkt var á árinu, tók Dýraverndarráð við af Dýraverndarnefnd en Jónas
Jónsson var tilnefndur til að vera áfram fulltrúi BÍ á þessu sviði.
Búfjárrœktarnefndir, sem starfa samkvæmt lögum um búfjárrækt. Þær voru
kosnar af Búnaðarþingi 1994 til tveggja ára. Formenn og fulltrúar BI eru:
Nautgriparæktarnefnd, Jón Viðar Jónmundsson. Sauðfjárrœktarnefnd, Sigurgeir
Þorgeirsson en Jón Viðar Jónmundsson í fjarveru hans. Hrossarœktarnefnd,
Kristinn Hugason. Loðdýrarœktarnefnd, Ævarr Hjartarson ráðunautur.
Svínarœktarnefnd, Pétur Sigtryggsson. Alifuglanefnd, Guðmundur Jónsson.
Landsmarkanefnd, fulltrúi BÍ í nefndinni er Ólafur R. Dýrmundsson ráðunautur.
Samráðsnefnd um viðurkenningu nýrra býla og félagsbúa, Jónas Jónsson hefur
starfað í nefndinni fyrir BÍ.
Erfðanefnd búfjár, sem starfar eftir ákvæðum í búfjárræktarlögum að vernd-
un eiginleika búfjárkynja, Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur er fulltrúi BI í
nefndinni.
Fagráð sem Búnaðarfélag íslands hel'ur tekið þátt í að stofna og á aðild að
starfa á eftirfarandi sviðum: I nautgriparœkt, í sauðfjárrœkt og í hrossarækt.
Hliðstætt þessum ráðum er verkefnaráð í bútækni. Fagráðin eru sam-
starfsvettvangur leiðbeiningaþjónustu, rannsóknarstarfsemi, kennslu og eftir
atvikum dýralæknaþjónustu bænda (búgreinafélaga). Ráðunautar BÍ á viðko-
mandi sviðum starfa í fagráðunum og vísast til skýrslna þeirra.
Þátttaka í samtökum með öðrum þjóðum
Norrænu bœndasamtökin (NBC). Stéttarsamband bænda, Búnaðarfélag
Islands, Framleiðsluráð landbúnaðarins, Samband sláturleyfishafa og Samtök
afurðastöðva í mjólkuriðnaði teljast mynda íslandsdeild NBC. Formaður
Stéttarsambands bænda kemur fram sem oddviti hennar en ritari þar lengst af á
síðasta ári var Gunnlaugur A. Júlíusson hjá Stéttarsambandi bænda en er hann
hvarf til annarra starfa síðari hluta árs tók við Jón R. Björnsson hjá
Framleiðsluráði. Þátttaka frá Búnaðarlélagi íslands á árinu var sú að undirritaður
sat f forföllum Hauks Halldórssonar fulltrúaráðsfund í Helsingfors dagana 10. og
18