Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 22
áherslur á að kynna íslenskar landbúnaðarvörur á grundvelli heilnæmis þeirra og
hreinleika. Fjallað var nokkuð um lífrænan og vistvænan landbúnað og um
svonefnda gæðastjórnun við vinnslu búvara. Síðari hluta fyrsta dagsins var
yfirskrift fundarins, “Breyttir tímar í landbúnaði,” þar var m.a. fjallað um EES- og
GATT-samninga, markaðsmöguleika í breyttu umhverfi, hlutverk afurðastöðva og
nokkur erindi flutt um markaðsmöguleika lambakjöts.
Fyrri hluta annars dags varfjallað um, “Búnaðarhagfræði,” m.a. búreikninga-
hald, áætlanagerð og athuganir á afkomu bænda. Síðari hluta þess dags var
yfirskrift erindanna, “Samskipti ráðunauta og bænda á erfiðleikatímum.”
Fyrri hluta þriðja dags var fjallað um “Hrossarækt” frá ýmsum sjónarhornum
og síðari hluta dagsins var “Nautgriparækt” tekin til meðferðar. Fjórða daginn
var viðfangsefnið, “Ferðaþjónusta” og var fjallað um ýmsa þætti hennar og við-
fangsefni. Síðasta viðfangsefnið var, “Jarðrækt og heyverkun.”
Undirbúningsnefndir Ráðunautafunda hafa um langt árabil gert þær kröfur til
höfunda erinda sem flutt eru á Ráðunautafundum að þeir skiluðu skrifuðum
handritum sem birt hafa verið í hefti og dreift til þátttakenda. Þetta hefur í stórum
dráttum gengið mjög vel og fyrir vikið eru nú til hefli með flestum erindum sem
flutt hafa verið síðustu tuttugu árin.
I undirbúningsnefnd Ráðunautafundar 1994 voru: Magnús Sigsteinsson,
Margrét Jóhannsdóttir og Óskar ísfeld Sigurðsson ráðunautar fyrir hönd BÍ og
Borgþór Magnússon, Tryggvi Eiríksson og Tryggvi Gunnarsson frá Rala.
Önnur námskeið. Búnaðarfélagið átti aðild að allmörgum öðrum
námskeiðum og fræðslufundum bæði í samvinnu við búnaðarsamböndin og
bændaskólana báða sem sjá um hið skipulagða námskeiðahald fyrir bændur. Um
þessi námskeið og fundi geta þeir ráðunautar sem að hafa staðið hver í sinni
starfsskyldu.
Útgáfustarfsemi
Utgáfa rita var með óbreyttum hætti miðað við fyrri ár. Út voru gefin:
Búnaðarritið sem er ársrit með skýrslum frá Búnaðarþingi og starfsemi BÍ auk
nokkurra fræðilegra greina. Freyr sem er bæði faglegt leiðbeiningarit og félags-
blað (gefið út í samvinnu við Stéttarsamband bænda). Nautgriparæktin,
Sauðfjárrœktin og Hrossarœktin sem eru árleg sérrit sem fjalla um ræktun-
arstarfsemina hjá viðkomandi búgreinum. Þá gaf BÍ út Fréttabréf SÍL og BÍ er
sent var öllum loðdýrabændum og kostaði á móti SÍL Loðdýrablaðið sem flytur
mánaðarlegar leiðbeiningagreinar fyrir loðdýrabændur. Enn fremur á BÍ aðild að
útgáfu ritsins Búvísindi sem einkum birtir niðurstöður rannsókna og vísinda-
greinar. Á árinu kom út hjá BÍ bókin Jarðvegsfrœði eftir Þorstein Guðmundsson,
jarðvegsfræðing áður kennara á Hvanneyri, nú búsettan í Þýskalandi, en engin
kennslubók eða handhægt fræðsluefni á þessu sviði hefur verið aðgengilegt
síðustu áratugina.
20