Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 102
Fóðurtegundir, fóðrun, vítamín- og steinefnaþarfir svína (Fjölrit Rala nr. 166,
169 og 172).
Allmikill tími fór í að taka saman nýlegar upplýsingar frá Danmörku um
fóðurtegundir, fóðrun, vítamín- og steinefnaþarfir svína. Þar sem fóðurkostnaður
er um 50-60% af framleiðslukostnaði svínakjöts og að það er orðið æ algengara
að svínabændur blandi fóðrið heima á svínabúunum taldi ég nauðsynlegt að þeir
hefðu aðgang að nýlegum upplýsingum um fóðurtegundir og fóðrun svína.
Ég tel rétt að það komi fram að ég hef ávallt sent öllum svínabændum þau
fjölrit Rala sem fjalla um svínarækt.
Skýrsluhaldsþjónusta í svínarœkt hjá Búnaðarfélagi Islands.
Akveðið hefur verið að Búnaðarfélag Islands taki að sér að annast tölvu-
skráningu og uppgjör á skýrsluhaldi fyrir þá svínabændur sem þess óska. Ætlun-
in er að nota forritið “Svínakerfi” hjá Tölvumyndum hf. sem Svínaræktarfélag
Islands hefur látið gera.
Aðalkostur þessa fyrirkomulags er að þeir svínabændur sem koma til með að
nýta sér þessa þjónustu þurfa ekki að fjárfesta í dýrum tölvum en forritið gerir
kröfur um öfluga tölvu með minnst 8 Mb vinnsluminni. Einnig er þetta mikill
vinnusparnaður fyrir svínabændur þar sem þeir losna við alla vinnu við
tölvuskráningu. Það er ekkert skilyrði að þeir bændur sem nýta sér þessa þjón-
ustu séu vanir tölvunotkun. Þetta verður ókeypis þjónusta hjá Búnaðarfélagi
Islands og farið verður með niðurstöður sem trúnaðarmál.
Ég varði allmiklum tíma frá því í lok september í að kynna mér áðurnefnt for-
rit og búa til hentug eyðublöð sem eru í samræmi við gerð forritsins. Notuð verða
eftirfarandi eyðublöð við gagnaöflun:
1. Viðhald galtarskrár - göltur, móðir, faðir, fæðingardagur o.fl.
2. Viðhald gyltuskrár - gylta, móðir, faðir, fæðingardagur o. II.
3. Svínaframleiðsla - gylta, göltur, tilhleyping, got, fráfærur o. II.
4. Skýrsla yfir innlegg og flokkun á svínakjöti - númer grísa, fall, kjötmat,
fitumál o.fl.
Nokkur reynsla er nú þegar komin á notkun þessara eyðublaða þar sem ég hef
notað þau við tölvuskráningu á rúmlega eitt þúsund sláturgrísum og ekki er hægt
að segja annað en þau hafi reynst vel. Fyrstu þrjú eyðublöðin eða viðhald galtar-
skrár, viðhald gyltuskrár og svínaframleiðsla verða útfyllt á viðkomandi svína-
búi, síðar verður bætt við upplýsingum um nýjar gyltur, gelti og ný got. Þessar
upplýsingar verða síðan tölvuskráðar hjá Tölvudeild Búnaðarfélags Islands.
Þegar þessum aðgerðum er lokið mun fara fram tölvuskráning á upplýsingum
frá sláturleyfishöfum þar sem tilgreind eru númer sláturgríss, fallþungi, kjötmat,
fita á hrygg, fita á bóg og athugasemdir um viðkomandi sláturgrís. Til þess að
viðkomandi svínabóndi fái sem fyrst útreiknaðar niðurstöður eftir hverja slátrun
er mjög hentugt að biðja viðkomandi sláturleyfishafa að senda áðurnefndar
100