Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 15
26. ágúst og lauk 27. ágúst. Það hélt fjóra fundi, fékk þrjú mál til meðferðar og
afgreiddi þau. (Sjá skýrslu um Auka-Búnaðarþing 1994 í Búnaðarritinu 1994,
107. árgangi bls. 199).
Strax að loknu Búnaðarþingi hófst undirbúningur að næstu skrefum varðan-
di fyrirhugaða sameiningu BI og Sb.
Ákveðið var að láta fara fram skoðanakönnun meðal allra bænda á afstöðu
þeirra til sameiningarinnar og að hún skyldi fara fram í tengslum við sveitar-
stjórnarkosningar sem framundan voru. Jafnframt var ákveðið að boðað yrði til
kynningarfunda í búnaðarsamböndunum þar sem nefndarmenn í sameiningar-
nefndinni skiptu með sér að mæta.
Þessir fundir voru haldnir sem hér segir hjá búnaðarsamböndununt: Bsb.
Kjalarnesþings 12.4. að kvöldi, þar mættu Jón Helgason og Haukur Halldórsson.
Bsb. Borgarfjarðar 12.4., þar mættu Jón Helgason og Haukur Halldórsson. Bsb.
Snæfellinga 20.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og Þórólfur Sveinsson. Bsb.
Dalamanna 12.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og Þórólfur Sveinsson. Bsb.
Vestfjarða í A.-Barðastrandarsýslu 16.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og
Guðmundur Stefánsson. í V.-Barðastrandarsýslu, 17.4., þar mættu Gunnar
Sæmundsson og Guðmundur Stefánsson. í V.- og N.-ísafjarðarsýslum 18.4., þar
mættu Gunnar Sæmundsson og Haukur Halldórsson. Bsb. Strandamanna 22.4.,
þar mættu Gunnar Sæmundsson og Þórólfur Sveinsson. Bsb. V.-Húnavatnssýslu
11.4., þar mættu Jón Helgason og Haukur Halldórsson. Bsb. A.-Húnavatnssýslu
11.4., þar mættu Jón Helgason og Haukur Halldórsson. Bsb. Skagfirðinga 15.4.,
þar mættu Gunnar Sæntundsson og Guðmundur Stefánsson. Bsb. Eyjafjarðar
14.4., þar mættu Gunnar Sæntundsson og Guðmundur Stefánsson. Bsb. S.-
Þingeyinga 14.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og Guðmundur Stefánsson.
Bsb. N.-Þingeyinga 13.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og Guðmundur
Stefánsson. Bsb. Austurlands 17.4., þar mættu Jón Helgason og Haukur
Halldórsson. Bsb. A.-Skaftafellssýslu 12.4., þar mættu Gunnar Sæmundsson og
Guðmundur Stefánsson. Bsb. Suðurlands í V.-Skaftafellssýslu 11.4., þar mættu
Gunnar Sæmundsson og Guðmundur Stefánssoq, I Rangárvallasýslu 11.4., þar
mættu Gunnar Sæmundsson og Guðmundur Stefánsson og í Árnessýslu 10.4.,
þar mættu Gunnar Sæmundsson og Guðmundur Stefánsson.
Þrátt fyrir mikilvægi málsins sem var til umræðu voru fundir þessir ekki vel
sóttir og ekki urðu, svo vart yrði, miklar umræður meðal bænda eða starfsmanna
landbúnaðarins um kosti þess eða galla að sameina þessi meginsamtök bænda.
Skoðanakönnun. Stjórnir samtakanna tilnefndu þá Herniann Sigurjónsson og
Jónas Jónsson frá BÍ og Guðmund Stefánsson og Hákon Sigurgrímsson frá
Stéttarsambandi bænda í nefnd til að hafa yfirumsjón með framkvæmd
skoðanakönnunarinnar og var hún kölluð skoðanakönnunarnefnd. Ákveðið var
að allir bændur og makar þeirra sem væru félagsbundnir í þeim félögum sem
mynduðu B1 og eða Sb skyldu eiga rétt til þátttöku í skoðanakönnuninni.
13