Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 68
Ferðalög. Skoðuð voru beitilönd á nokkrum stöðum, einkum á
Suðvesturlandi og í Mývatnssveit. Lengst af var svalt og spretta hæg út
júnímánuð en þá hlýnaði vel og reyndist sumarið í heild mjög hagstætt öllum
gróðri. Það var fénaði áfallalaust og reyndist fallþungi dilka með mesta móti. I
lok ágúst skoðaði ég afrétti og heimalönd í Skútustaðahreppi vegna starfa í
ítölunefnd. Þar var ástand gróðurs með besta móti, víða í framför og góð dreif-
ing á fé. Anægjulegt var að kynnast nú betur en áður þeim markvissu uppgræðs-
luaðgerðum sem margir bændur í sveitinni vinna að í heimalöndum og afréttum
í samvinnu við Landgræðslu ríkisins og fleiri aðila. Rofabörðum í heimalöndum
er lokað með sérsmíðuðum tækjum og búfjáráburður borinn á í stórum stíl, vis-
sulega góð fyrirmynd að því sem koma skal. Ég kom að venju í nokkrar réttir,
m.a. í Ölfusréttir, og tvisvar fór ég í kynnisferðir með útlenda gesti um
Suðurland, með þingmenn frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen í lok maí og með
landbúnaðarmenn frá Nýfundnalandi um miðjan október (sjá önnur störf). Þann
7. október var ég viðstaddur vígslu nýju tilraunafjárhúsanna á Hesti í Borgarfirði
en þar hefur tekist sérlega vel til um alla framkvæmd. I lok mars sótti ég
námskeið um lífrænan landbúnað í Finnlandi, í byrjun júlí sat ég INTERNOR-
DEN fund sauðfjárræktarráðunauta á Norðurlöndum, í Færeyjum, og í byrjun
september sótti ég tvær búfjárræktarráðstefnur í Skotlandi (sjá fundir og
ráðstefnur).
Fundir og ráðstefnur. Að venju var mikið um fundarsetur auk framangreindra
nefndarstarfa sem sum hver voru allumfangsmikil. Ég sat Ráðunautafund
Búnaðarfélags Islands og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og flutti þar erindi
(sjá ritaskrá). Þá fylgdist ég með umræðum á Búnaðarþingi og mætti á nokkrum
nefndarfundum til skrafs og ráðagerða. Nokkrum sinnum á árinu sat ég fundi í
Bændahöllinni vegna sameiningar Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands
bænda, á Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Keldnaholti vegna hrossabeitar,
beitarþolsmats o.fl. og í landbúnaðarráðuneytinu vegna undirbúnings laga- og
reglugerðar um lífrænan landbúnað o.fl. Einnig sat ég þar marga fundi vegna þeir-
ra nefndarstarfa sem áður var vikið að. I byrjun janúar sat ég gagnlegan fund með
Carl Haest markaðsráðgjafa frá Belgíu og sótti nokkrum dögum síðar ráðstefnu í
Hótel Sögu þar sem hann var frummælandi um lífræna framleiðslu og markaðs-
mál. Þann 10. febrúar komu til mín nokkrir bændur og áhugamenn um lífrænan
Iandbúnað til að ræða um reglur og vottun. Daginn eftir sat ég fund í Hótel Sögu
með þeim og dr. Sigurgeiri Þorgeirssyni aðstoðarmanni landbúnaðarráðherra þar
sem fjallað var um sama efni. Um miðjan þann mánuð var ég viðstaddur blaða-
mannafund þar sem greint var frá áformum um útflutning kjöts með viðurken-
ningu fyrir hreinleika og gæði. I byrjun mars tók ég þátt í pallborðsumræðum á
fundi Örverufélags Islands í Norræna húsinu um flutning sýklasmits til landsins
með vörum, dýrum og fólki. I byrjun apríl sat ég málþing í Hótel Holiday Inn um
landnýtingu og ímynd hestamennskunnar og flutti þar erindi um hrossabeit.
66