Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 202
11. grein
Kosningarétt og kjörgengi til Búnaðarþings hafa bændur, sbr. 3. grein,
séu þeir félagar í búnaðarsambandi/búgreinasambandi eða aðildarfélögum
þeirra og hafi greitt tilskilin sjóða- og/eða félagsgjöld.
Bændum sem hætt hafa búskap vegna aldurs skal heimil áframhaldandi
þátttaka í viðkonrandi félagi með fullum félagsréttindum, hafi þeir áfram
búsetu á hlutaðeigandi félagssvæði.
Enginn getur átt kosningarétt í fleiri en einu búnaðarfélagi.
12. grein
Það ár, sem kosningar til Búnaðarþings fara fram, skal í hverju búnaðar-
félagi, eigi síðar en 1. október, kjósa fulltrúa á fulltrúafund búnaðarsam-
bands, sbr. 13. grein. Tala fulltrúa fyrir hvert búnaðarfélag fer eftir fjölda
félagsmanna þess, þannig að í búnaðarsamböndum, sem kjósa þrjá þing-
fulltrúa eða færri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa tvo fulltrúa,
félög með 31-60 félaga kjósa þrjá, félög með 61-90 félaga kjósa fjóra og
fjölmennari félög kjósa fimm. 1 búnaðarsamböndum, sem kjósa fjóra þing-
fulltrúa eða fleiri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa einn fulltrúa,
félög með 31-60 félaga kjósa tvo, félög með 61-90 félaga kjósa þrjá og fjöl-
mennari félög kjósa fjóra. Búgreinafélög, sem aðild eiga að búnaðarsanr-
bandi, skulu enn fremur og eigi síðar en 1. október kjósa hvert um sig einn
fulltrúa á fulltrúafund búnaðarsambands.
Fulltrúar skulu kosnir á almennum félagsfundi í búnaðarfélagi. Bændur
og aðrir þeir, sem kosningarétt hafa í félaginu, skulu boðaðir á fundinn með
minnst þriggja daga fyrirvara á tryggilegan hátt, hvort heldur er með bréfi,
símskeyti eða beinu símtali við þá sem kosningarétt hafa.
13. grein
Kosningar til Búnaðarþings skulu fara þannig fram hjá búnaðarsam-
böndum:
1. Boða skal til fulltrúafundar hjá hverju búnaðarsambandi með minnst
tveggja vikna fyrirvara á tryggilegan hátt, hvort heldur er með bréfi,
símskeyti eða beinu símtali við hina kjörnu fulltrúa.
2. Berist stjórn búnaðarsambands fleiri en einn kjörlisti fyrir fulltrúafund,
með fleiri mönnum en kjósa skal, skal fara fram alinenn kosning á þing-
fulltrúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa.
3. Berist einn kjörlisti fyrir fulltrúafund og nýti fulltrúar sér rétt til að bera
fram kjörlista á fundinum, þannig að fram eru komnir fleiri en einn
kjörlisti, með fleiri mönnum en kjósa skal, fer frain almenn kosning á
þingfulltrúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa.
4. Berist einn kjörlisti fyrir fulltrúafund og nýti fulltrúar sér ekki rétl til að
200