Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 93
fundur og í öðrum anda en ég átti von á og er það vel.
A árinu hef ég fyrir hönd Búnaðarfélags Islands haft milligöngu um útvegun
íslenskra kynbótadómara til dómstarfa erlendis, hefur í þeim tilvikum ekki verið
um að ræða dóma skv. íslenskum dómareglum. A árinu svaraði ég fjölmörgum
bréfum og símtölum erlendis frá og nokkrir erlendir aðilar sóttu mig heim á
skrifstofu, þar á meðal voru stúdentar frá háskólum erlendis sem áhuga höfðu á
að kynna sér ýmislegt varðandi íslenska hrossarækt.
Dagana 5.-8. september sótti ég hina árlegu ráðstefnu Búfjárræktarsambands
Evrópu, EAAP, sem fram fór í Edinborg. Sótti ég fyrirlestra í hrossa- og
erfðafræðideildum ráðstefnunnar. Var þetta í fyrsta sinn sem ég sótti ráðstefnu
þessa en ferðina tel ég hafa verið mér mjög gagnlega, faglega séð. Tókst mér t.d.
að ná enn betra sambandi við ýmsa þá fræðimenn sem sóttu okkur Islendinga
heim í fyrra á alþjóðlega fræðafundinn um hrossarækt, sjá síðustu starfsskýrslu.
Eg tel það mjög mikilvægt að mér takist að rækja áfram samskiptin við fræði-
menn á sviði hrossaræktar á vettvangi EAAP.
Ymislegt. A árinu lauk ég endurskoðun á skipulagsskrá Sleipnisbikarsins, í
takt við nýjan tíma, og var skipulagsskráin samþykkt á vorfundi hrossaræktar-
nefndar og staðfest af stjórn Búnaðarfélags Islands. Sleipnisbikarinn var síðan
afhentur nteð viðhöfn á landsmótinu á Gaddstaðaflötum. Bikarinn sem varla
nokkurn tímann hefur verið fegurri en nú eftir viðgerð er geymdur í húsakynnum
Búnaðarfélagsins og hafður þar til sýnis. Vinningshafinn fékk aftur á móti í
hendur áletraða mynd af bikarnum.
Festa er nú kominn á kjör ræktunarmanns ársins en skipulagsskrá sem ég setti
saman um það kjör hlaut í haust staðfestingu stjórnar Búnaðarfélagsins.
Búnaðarmálastjóri afhenti vinningshafanum þetta árið, Magnúsi Einarssyni,
Kjarnholtum I í Ámessýslu, heiðursviðurkenningu á uppskeruhátíð hestamanna
sem haldin var á Hótel Sögu þann 11. nóvember. Viðurkenningin er slípaður
steinn þar sem ártalið, nafn vinningshafans, heiðursáletrun og merki
Búnaðarfélagsins og hrossaræktarinnar er klappað á. Festa er væntanlega og
komin á að uppskeruhátíð hestamanna verði árlega haldin á Hótel Sögu. í haust
var ég í undirbúningsnefnd hátíðarinnar og var veislustjóri.
I haust tók ég þátt í undirbúningi og kenndi á námskeiði um kynbótafræði og
hrossarækt sem Búnaðarfélag Islands stóð að með Endurmenntunardeild
Bændaskólans á Hvanneyri. Námskeiðið fór fram á Hvanneyri dagana 14.-16.
nóvember og var Þorvaldur Árnason aðalkennari. Þátttakendur voru einkunt
ráðunautar og nemendur Búvísindadeildarinnar á Hvanneyri.
Eg hafði umsjón með einum nemanda frá Búvísindadeildinni á Hvanneyri
sem kom hingað í Búnaðarfélagið til að kynna sér starfsemi leiðbeiningaþjónust-
unnar í búfjárrækt, einkum þó hrossarækt. Dvaldi hann hér vikuna 7. -11.
nóvember.
91