Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 149
“Að virtum þeim gögnum sem nefndinni hefur borist telur hún forsendu lög-
bundinnar þátttöku í forfallaþjónustu í sveitunr þá, að öllum bændum verði skylt
að taka þátt í starfseminni. Þá tillögu treystir nefndin sér ekki að leggja fram og
metur ekki ástæðu til að hafa sérstök lög um starfsemi sem hægt er að segja sig frá.
Nefndin telur hins vegar fulla þörf fyrir áframhaldandi starf forfalla- og
afleysingaþjónustu í sveitum og beinir því til samtaka bænda að taka þetta mál
upp á sínum vettvangi og stofna sem fyrst til samstarfs um þessa þjónustu, þar
sem aðild yrði frjáls. Það verður að gera áður en lögin verða felld úr gildi. Gangi
það ekki er eðlilegt að bændasamtökin leiti annarra leiða til að tryggja áfram-
haldandi forfallaþjónustu í sveitum.”
Starfsemi 1994. Starfsemi forfallaþjónustunnar var með líkum hætti og undan-
farin ár. Heldur minni eftirspurn var eftir þjónustu en áður sem kann að stafa af því
að þeir sem samþykkt höfðu úrsögn hafi talið að úrsögnin tæki þá þegar gildi. Á
árinu rýmkaðist því um fjárhag forfallaþjónustunnar þannig að unnt var að greiða
upp skuld sem orðið hafði til vegna halla undanfarinna ára. Einhver afgangur mun
verða sem endurgreiddur verður til framleiðenda í gegnum Framleiðsluráð.
Hámarksréttur lil afleysinga voru 18 dagar eins og á árinu 1993. Á árinu 1994
voru unnin 30,1 ársverk og er það um 5 ársverkum minna en var 1993.
I meðfylgjandi töflu koma fram ársverk, sem áætlun var gerð um, og til
samanburðar nýtt ársverk hverl ár frá 1984. Þá fylgir hér með yfirlit yfir afleys-
ingar hjá einstökum búnaðarsamböndum. Þar kemur fram að fjöldi afleysinga-
mánaða var 361 eða 30,1 ársverk og voru þau unnin af 480 manns.
Stjórn Forfallaþjónustu í sveitum er ætlað að starfa til 1. apríl 1995 til að
ljúka uppgjöri á málefnum forfallaþjónustunnar.
Eg vil við lok þessarar starfsemi tjá þakkir mínar fyrir ágætt samstarf við
stjórn forfallaþjónustunnar, Þorbjörgu Oddgeirsdóttur, sem annast hefur daglega
umsjón með vinnuskýrslum og afgreiðslu launa o.fl. og einnig við þá sem að þes-
sum málum hafa unnið hjá búnaðarsamböndunum og víðar.
Ársverk 1984-1994
Áætluð Nýtt
ársverk ársverk
1984 ......................................... 50,0 60,6
1985 ......................................... 60,0 61,5
1986 ......................................... 60,0 65,9
1987 60,0 66,1
1988 ......................................... 60,0 62,7
1989 60,0 72,2
1990 ......................................... 60,0 71,6
1991 60,0 65,2
147