Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 203
bera fram kjörlista á fundinum skoðast þeir, sem á listanum eru, rétt
kjörnir þingfulltrúar.
5. Berist ekki kjörlisti fyrir fulltrúafund getur 1/3 fulltrúa, sem fundinn
sækir, krafist þess að fram fari almenn óhlutbundin kosning á þingfull-
trúum meðal bænda og annarra þeirra sem kosningarétt hafa.
Að öðrum kosti skulu þingfulltrúar kosnir á fundinum. Ef 1/3 fulltrúa,
sem fundinn sækir, krefst þess skal sú kosning vera hlutbundin en ella
óhlutbundin.
6. Bændur og aðrir þeir, sem kosningarétt hafa, hafa rétt til að bera fram
kjörlista. Þurfa að lágmarki annað hvort 15% eða 30 félagsmenn, sem
atkvæðisrétt hafa í búnaðarsambandi, að styðja lista þar sem kosinn er
einn fulltrúi. í þeim búnaðarsamböndum, sem kjósa fleiri en einn full-
trúa, þurfa annað hvort 15% eða 60 félagsmenn, sem atkvæðisrétt hafa,
að styðja lista.
Kjörlisti skal berast stjórn búnaðarsambands fimmtán dögum fyrir full-
trúafund og skal hann tilkynntur fulltrúum með minnst tíu daga fyrirvara
fyrir fundinn með sama hætti og greinir í 1. tl. Hafi aðeins einn kjörlisti
borist skal jafnframt gefa öðrum kost á að bera fram kjörlista fyrir
fundinn. Vilji fulltrúar á fulltrúafundi bera fram kjörlista þarf að lágmarki
1/4 hluti þeirra að standa að slíkum lista.
7. Fari fram almenn kosning á þingfulltrúum, sbr. 2., 3. eða 5. tl., er stjórn
búnaðarsambands kjörstjórn og sér hún um undirbúning kosninga,
ákveður kjördag, tilgreinir kjördeildir og kjörstaði, skipar undirkjör-
stjórnir, ef um fleiri en einn kjörstað er að ræða, og sér um að auglýsa
kosningarnar með tryggilegum hætti. Skal kjörstjórn sjá um að gera
kjörseðla og dreifa þeim í kjördeildir, úrskurða kjörski'á en í upphafi hvers
fulltrúafundar skal liggja frammi félagatal eins og það var 1. júní það ár,
sem kosið er, og skulu koma fram athugasemdir við það á fulltrúafund-
inum. Komi engar athugasemdir fram telst félagatalið löglegt.
Kjörfundur má eigi standa skemur en í fimm klukkustundir nema allir
þeir, sem eru á kjörskrá, hafi greitt atkvæði. Um kosningu á kjörstað og
meðferð atkvæða gilda almennar reglur laga um kosningar til Alþingis.
Talning atkvæða skal fara fram eins fljótt og við verður komið þegar
atkvæði hafa borist frá undirkjörstjórnum, en þær skulu þegar að loknum
kjörfundi senda kjörstjórn kjörgögn með tryggilegum hætti. Kjörstjórn til-
kynnir yfirkjörstjórn um úrslit kosninganna að lokinni talningu.
14. grein
Kosning þingfulltrúa frá búgreinafélögum eða búgreinasamböndum skal
fara fram á aðalfundum þeirra eða sérstökum aukafundum eftir því sem
nánar segir í samþykktum þeirra.
201