Búnaðarrit - 01.01.1995, Blaðsíða 19
eða sömu upphæð og beðið var um árið áður, þar af var beðið um 3,8 millj. kr.
vegna lífeyrishækkana.
Áætlun vegna jarðræktarlaga hljóðaði upp á 205,8 millj. kr. Af þeim var
launahlutur héraðsráðunauta 37,7 millj. kr., ferðakostnaður héraðsráðunauta 8,06
millj. kr. og ætlað til að greiða jarðræktarframlög 160 millj. kr. en það svaraði til
þeirra framlaga sem ógreidd voru vegna framkvæmda sem unnar voru á árunum
1992 og 1993.
Vegna búfjárræktarlaga var beðið um 90,6 millj. kr. og rætt var um 2,6 millj.
kr. til greiðslu á lífeyrishækkunum vegna héraðsráðunauta.
Á fjárlögum fengust hins vegar allmiklu lægri upphæðir en þetta. Til starf-
semi BÍ kontu 75,9 millj. kr., og 3.8 millj. til lífeyrishækkana (samt. 79,7 millj.
kr.) eins og á síðasta ári. Fjárveitingar til búfjárræktarlaga og til launa og ferða-
kostnaðar héraðráðunautar eru sömuleiðis sömu upphæðir og fyrir árið 1994.
Engin króna fékkst heldur inn á fjárlög fyrir árið 1995 til að greiða jarðrækt-
arframlög. Hins vegar voru veittar 40 millj. kr. á fjáraukalögum fyrir árið 1994.
Þeirri ákvörðun fylgdi sú greinargerð frá meirihluta fjárlaganefndar að þetta
skyldi nota til að greiða framlög vegna vatnsveitna og áburðargeymslna sem
gerðar voru á árunum 1992 og 1993.
Að venju komu allmörg frumvörp til laga eða þingsályktanir til umsagnar hjá
stjórn og veitti hún þær svo fremi að Búnaðarþing hefði þá ekki fjallað um þau.
Aðild að stjórnum, föstum nefndum og innlendum samtökum
Stjóm Stofnlánadeildar landbi'maðarms. Jón Helgason formaður BÍ sat í
stjórninni og er varamaður hans Sigurður Þórólfsson, bóndi Innri-Fagradal.
Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Jónas Jónsson sat í stjórninni
tilnefndur af BÍ.
Stjórn Lífeyrissjóðs bcenda. Magnús Sigurðsson bóndi Gilsbakka var endur-
tilnefndur í stjórnina seint á árinu en varamaður hans var tilnefndur Hermann
Sigurjónsson bóndi Raftholti.
Stjórn Bjargráðasjóðs. Formaður Búnaðarfélags Islands er lögum samkvæmt
í stjórninni.
Stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Jónas .lónsson átti sæti í
stjórninni og varamaður hans var Ólafur E. Stefánsson, tilnefndir af stjórn
Búnaðarfélags Islands. Skipunartíma þeirra lýkur snemma á nýju ári.
Tilraunaráð Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Ráðunautamir Ólafur R.
Dýrmundsson og Óttar Geirsson voru aðalmenn í ráðinu og varamenn þeirra,
ráðunautarnir Jón Viðar Jónmundsson og Magnús Ágústsson, tilnefndir af stjórn
Bl. Skipunartími ráðsins er nú senn liðinn.
Veiðimálanefnd. Jónas Jónsson átti sæti í nefndinni og varamaður var
Magnús Sigurðsson bóndi, Gilsbakka, tilnefndir af stjóm BI.
Stjórn Laxeldisstövðar ríkisins í KoUaftrði. Jónas Jónsson á sæti í stjórninni.
17