Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
FIMMTUDAGUR
12:15
18:40
FIMMTUDAGUR
Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ferskra
tilbúinna matvæla. Félagið rekur 55 verksmiðjur með 18 þúsund starfsmönnum í átta löndum.
Bakkavör Group framleiðir yfir 4.700 vörutegundir í 17 vöruflokkum og eru vörur félagsins
seldar undir vörumerkjum stórmarkaða. Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en
auk þess starfar félagið í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Suður-Afríku, Kína, Tékklandi og á Íslandi.
ÞRIÐJUDAGUR
16:40
09:30
MIÐVIKUDAGUR
Rétt eins og í framsetning-
unni á „Pétursprinsippinu“
er „Parkinsons lögmálið“ sett
fram á skoplegan hátt. Það
dregur fram ákveðna tilhneig-
ingu hjá fólki til að láta vinn-
una fylla upp í tímann sem
er til ráðstöfunar. Því minna
sem er að gera því meira er
gert úr einstaka verkþáttum.
Það sem áður var óformlegt og miðaði að því að ná niðurstöðu hratt
og vel umbreytist í formfast ferli þar sem skrefin í ferlinu skipta orðið
meira máli en endanleg afgreiðsla málsins. Í stuttu máli má kalla þetta
skrifræðistilhneigingu.
Í þriðju útgáfu bókarinnar „Writers on Organizations “ (1983),
sem sett var saman af D.S. Pugh, D.J. Hickson and C.R. Hinings,
er að finna umfjöllun um framlag Parkinsons. Þar er „Parkinsonslög-
málinu“ lýst og greint frá því að samhliða lögmálinu megi sjá dæmi
um að stjórnendur hafi tilhneigingu til að fjölga undirmönnum. Í
stað þess að færa verkefni til samstarfsmanna þá séu ráðnir helst tveir
undirmenn. Vinnan sem færist frá yfirmanni til undirmanns er þá
aðeins hluti af því verki sem vinna þarf. Með tveimur undirmönnum
sé hægt að tryggja að yfirmaðurinn hafi einn yfirsýnina og að hann
ráði þar með ferðinni. Svona gæti þetta gengið koll af kolli niður
stjórnunarstigann. Að auki er veruleg hætta á því að yfirmenn ráði
undirmenn sem ekki jafnist á við þá sjálfa að getu og færni. Park-
inson bendir jafnframt á að starfsmenn í stoðþjónustu eigi það til að
búa til verkefni hver fyrir annan, sem enn ýtir undir vöxt starfsliðsins
og mikilvægi þeirra sjálfra. Þannig geti það verið tilhneigingin að
nefndum hvers konar fjölgi og að áhrifamáttur þeirra vaxi.
Í bókinni um „Parkinsonslögmálið“ er líka minnst á „smámuna-
lögmálið“ og „óskilvirknisviðmiðið“. Smámunalögmálið segir að tím-
inn sem notaður er í undirbúning og umfjöllun um tiltekið mál sé í
öfugu hlutfalli við þær upphæðir eða fjárhagslega skuldbindingu sem
um er fjallað. Ábendingin er að meiri tími fari í að ræða um smámál
heldur en stóru málin. Það er ekki laust við að til séu dæmi um þetta
víða á vinnustöðum. Óskilvirknisviðmiðið tengist á hinn bóginn
stærð stjórnsýslueiningarinnar. Parkinson segir að ef fjöldi í nefnd eða
á fundi nái 21 þá margfaldist óskilvirknin. Að umræða sé þá komin af
stað á fleiri en einum stað við borðið. Til að ná athygli þurfi einstaka
nefndarmaður að standa á fætur og þegar hann er staðinn upp þá
haldi viðkomandi ræðu. Þessi innbyggða virkni geri þar með út um
það að einingin geti unnið skilvirkt og náð árangri.
Glöggt auga Parkinsons hefur einnig birst í þeirri tilgátu hans að
glæsileiki og fágun í útliti höfuðstöðva fyrirtækja sé í öfugu hlutfalli
við framsækni og virkni þeirra í viðskiptum. Eftirfarandi setning er í
bókinni „Writers on Organizations“ (1983:98): „During exiting dis-
covery or progress there is no time to plan the perfect headquarters.
This comes afterwards – and too late.“
Það ber að hafa í huga að bókin um „Parkinsonslögmálið“ er
býsna gamalt ritverk en það er ekki laust við að það geti verið gagnlegt
að rifja það upp. Nánari upplýsingar um verk C. Northcote Parkin-
sons má fá á vefsíðunni www.fantasticfiction.co.uk/p/c/-northcote-
parkinson/. Einnig má minnast (án ábyrgðar) á umfjöllun um hann
á vefsetrinu www.wikipedia.org og upplýsingar um bækur hans á
www.amazon.com.
Michael E. Porter
Fyrsta atrenna að yfirliti um kenningakónga væri ekki fullnægjandi ef
nafn Michaels E. Porters (f. 1947) væri ekki á listanum. Staða Porters
er óumdeild og hefur verið það í mörg
ár. Hann hefur ávallt verið með þeim
efstu og nú síðast (2005) efstur á list-
anum yfir 50 helstu núlifandi hugsuði
á sviði stjórnunar og reksturs. Röðunin
fyrir 2007 er væntanleg fljótlega.
Um 80 nöfn eru á listanum (sbr.
umfjöllun á www.thinkers50.com) og
það sem lagt er til grundvallar við
röðunina eru m.a. eftirfarandi 10 við-
mið: 1) Hversu frumlegar eru hug-
myndirnar; 2) hversu hagnýtar eru hug-
myndirnar; 3) hversu vel og vandlega er
hugmyndunum komið á framfæri; 4) hversu vel er hugmyndunum
miðlað skriflega; 5) hversu öfluga fylgismenn á hugsuðurinn með til-
liti til útbreiðslu á kenning-
unum og hagnýtingu þeirra;
6) notast hugsuðurinn við
eigin kenningar í starfsemi
sinni; 7) hversu alþjóðlegur
eru hugsuðurinn; 8) Hversu
vel er vandað til þess sem sett
er fram og hversu agaðar eru
rannsóknirnar sem liggja til
grundvallar; 9) hversu mikil áhrif hefur hugsuðurinn haft á stjórn-
endur og ráðamenn; 10) er viðkomandi sannanlega efni í kenninga-
kóng eða kenningadrottningu?
Með ofangreind viðmið í huga kemur ekki á óvart að Michael E.
Porter skuli vera efstur á listanum. Rétt er að geta þess að greinar-
höfundur fjallaði um Porter hér á síðum Frjálsrar verslunar fyrir einu
ári, í 8. tbl. 2006, bls. 204-208. Þar var ítarlega fjallað um manninn,
stöðu hans og ritverk. Sú umfjöllun var í tilefni af því að Porter kom
til Íslands 2. október 2006 á vegum Capacent með stuðningi Háskóla
Íslands, Landsbanka Íslands, FL Group og 365 miðla. Við það
tækifæri varð Porter heiðursdoktor við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands og hann bauð deildinni að gerast aðili að samstarfi
sem stofnun hans, Institute for Strategy and Competitiveness við
Harvard háskóla, á við háskóla um allan heim. Þetta samstarf hefur
farið vel af stað. Greinarhöfundur er annar af tveimur fulltrúum við-
skipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands sem sjá um samstarfið.
Fyrsta skrefið var að sækja vinnufund sem Porter boðaði til í Har-
vard í desember 2006. Annað skrefið var tekið í febrúar 2007 með
ráðstefnunni Roots of Competitiveness sem haldin var hér á landi.
S T J Ó R N U N
Michael E. Porter.
Glöggt auga Parkinsons
hefur einnig birst í þeirri
tilgátu hans að glæsileiki og
fágun í útliti höfuðstöðva
fyrirtækja sé í öfugu hlutfalli
við framsækni og virkni
þeirra í viðskiptum.
Til að fyrirtæki verði
árangursrík þarf heilbrigt
samfélag. Til að gera
samfélag heilbrigt verða
öflug og árangursrík
fyrirtæki að vera til staðar.