Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 98
300 STÆRSTU
98 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
SKÝRINGAR
FYRIRTÆKJAKORT GLITNIS
– Meira úrval og fleiri frí›indi
55
85
5585
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-1
6
6
7
PLATÍNUM-KORT
N‡tist stjórnendum fyrirtækja sem þarfnast
ví›tækrar þjónustu og bestu trygginga.
GULLKORT
Hentugast í vi›skiptafer›um
og innifelur ví›tækar fer›atryggingar.
INNKAUPAKORT
Afar hentugt vi› kaup á rekstrarvörum
og þjónustu.
NÝJUNG
Glitnir b‡›ur fjölbreyttara úrval fyrirtækjakorta en
þekkst hefur og fleiri frí›indi standa til bo›a.
Hægt er a› velja milli eftirtalinna frí›inda:
Endurgrei›slu af veltu kortsins,
sem er n‡r valkostur fyrir fyrirtæki
Fer›aávísunar MasterCard, sem
rennur til fyrirtækis e›a starfsmanns
Vildarpunkta Icelandair
Erlendis er velta Baugs Group þekkt sem 1.169 mill-
jarðar króna og starfsmenn um 68.500 talsins. En
í Frjálsri verslun eru veltan 42,5 milljarðar og hér
kemur skýring á því.
Velta Baugs Group er 1.169 milljarðar króna sé
velta þeirra fyrirtækja, sem Baugur á leiðandi hlut í,
tekin með í samstæðuna.
Reglan um samstæðureikninga er sú að eigi
fyrirtæki 50% eða meira í öðru fyrirtæki telst það
dótturfélag og þar af leiðandi kemur öll velta þess
og starfsemi inn í samstæðuna. Baugur á hins vegar
um 35 til 40% í mjög stórum félögum í Bretlandi, t.d.
Iceland, og leiðir þau, þótt velta þessara fyrirtækja
komist ekki inn í samstæðu Baugs Group vegna
hinnar fyrrnefndu 50% reglu.
Frjáls verslun birtir því eingöngu veltu Baugs
Group sem hreins fjárfestingarfélags. Það merkir að
tekjurnar eru eingöngu vegna arðgreiðslna, mats-
breytinga á eignum, söluhagnaðar af hlutabréfum og
loks af fjármunatekjum.
Með öðrum orðum: Velta stóru félaganna í
Bretlandi er ekki inni í tölum Baugs Group.
Erlendis er velta Baugs Group hins vegar best
þekkt sem 1.169 milljarðar króna vegna þess að
velta þeirra fyrirtækja, sem Baugur á leiðandi hlut í
og er kjölfestufjárfestir í, er þá tekin með inn í sam-
stæðuna. Sambærileg tala vegna ársins 2005 var
913 milljarðar króna.
Það eru fyrst og fremst þrjár ástæður á bak við
aukningu milli 2005 og 2006.
1. Yfirtaka Baugs á House of Fraser.
2. Innri vöxtur.
3. Veikari króna á árinu 2006 en 2005, en stærstur
hluti veltu Baugs Group er í Bretlandi.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group.
1. Baugur Group:
1.169 milljarða kr. velta