Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 100
300 STÆRSTU
100 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
2. Fons fjárfestingarfélag
Fons er ekki inni á aðallista þar sem veltan fékkst
ekki uppgefin hjá fyrirtækinu. En hins vegar voru
veittar upplýsingar um að hagnaður Fons hafi á síð-
asta ári verið 29,9 milljarðar króna, eigið féð hafi
verið um 50 milljarðar og niðurstaða efnahagsreikn-
ingsins 100 milljarðar. En þetta eru sömu tölur og
birtust nýlega í mjög svo fróðlegu viðtali Frjálsrar ver-
slunar við Pálma Haraldsson í Fons.
3. Teymi
Teymi er á aðallista Frjálsrar verslunar en dótturfé-
lögin Vodafone, Kögun, EJS og Skýrr eru á sérgreina-
listunum; hvert og eitt í sinni atvinnugrein. Dagsbrún
var skipt upp seint á síðasta ári upp í 365 og Teymi.
Tölurnar fyrir Teymi eiga hins vegar við um reksturinn
allt síðasta ár til að fá samræmi við önnur fyrirtæki
á listanum.
4. Bergey
Bergey er eignarhaldsfélag Magnúsar Kristinssonar,
útgerðarmanns í Eyjum, utan um fyrirtæki í hans eigu
sem tengjast bílgreininni. Inni í Bergey eru því Toyota
á Íslandi, M. Kristinsson, Toppbílar, Bergey-fasteign-
afélag, Sólning, Barðinn, Motormax og Bílaleiga
Flugleiða.
5. Primera
Primera er samstæðan í kringum gömlu Heimsferðir.
Primera er eignarhaldsfélag sem rekur ferðaskrif-
stofur í mörgum löndum. Heimsferðir á Íslandi eru
eitt þessara félaga og eru núna dótturfélag Primera.
6. Ferðaskrifstofa Íslands
Inni í tölum Ferðaskrifstofu Íslands eru tölur
Sumarferða sem eru hluti af samstæðu
Ferðaskrifstofu Íslands.
Pálmi Haraldsson. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis.
Magnús Kristinsson, eigandi Bergeyjar. Andri Már Ingólfsson, eigandi Primera. Helgi Jóhannsson, eigandi
Ferðaskrifstofu Íslands og Sumarferða.