Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 150
150 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 STÆRSTU
Á rið 2007 hefur verið mikið framkvæmdaár hjá Bláa Lón-inu hf.,“ segir Grímur Sæmundsen forstjóri, „og hefur Bláa Lónið til að mynda tvöfaldað baðstað sinn að stærð
og endurnýjað hann. Einnig munum við slá enn eitt aðsókn-
armetið, því að við munum taka á móti
yfir 400 þúsund gestum á þessu ári í Bláa
lónið. Þá munum við opna nýja glæsilega
Hreyfingu – heilsurækt með Blue Lagoon
Spa í Glæsibæ í Reykjavík í lok árs. Einnig
höfum við haldið áfram að fjárfesta í
útrás vörumerkis okkar BLUE LAGOON
ICELAND,“ segir hann.
„Helsti styrkur Bláa Lónsins er einka-
nýting einstakrar og fjölbreyttrar auð-
lindar sem og vörumerkið BLUE LAG-
OON ICELAND,“ segir Grímur og
ennfremur að afkoma fyrirtækisins hafi
verið í samræmi við áætlanir. „Vöxtur félagsins hefur að jafn-
aði verið 30% á ári frá því að við opnuðum baðstaðinn okkar
árið 1999 og sjáum við fram á að framhald verði á miklum
vexti nú þegar nýjustu fjárfestingar okkar skila auknu tekju-
hæfi rekstrarins.“
Meginstefna Bláa Lónsins hf. er að byggja upp og styrkja
vörumerkið BLUE LAGOON ICELAND og felst framtíðar-
sýn félagsins í því að Bláa Lónið verði alþjóðlegt fyrirtæki á sviði
heilsu og vellíðunar.
Grímur segir aðspurður hvaða breyt-
ingar séu fyrirsjáanlegar á markaði Bláa
Lónsins á næstunni, að áhugi fólks á
heilsu og vellíðan fari sívaxandi. „Spurn
eftir heilsulindarþjónustu, eða spa-þjón-
ustu, hefur vaxið gríðarlega erlendis á
undanförnum árum og sú þróun mun
einnig eiga sér stað hér á landi. Heilsu-
markaður mun vaxa og áhugi á húðvörum
með virkni og nýjum vörumerkjum (niche
brands) í hinum alþjóðlega húðvörugeira
er mjög vaxandi og hið sama gildir um
áhuga á náttúrlegum lækningameðferðum
án aukaverkana,“ segir hann.
Aðspurður kveðst Grímur ekki telja að hægja muni á útrás
íslenskra fyrirtækja á næstunni og hvað erfiðleika í viðskipta-
lífinu varðar, sem hugsanlega má óttast, nefnir hann helst óróa á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
BLÁA LÓNIÐ • GRÍMUR SÆMUNDSEN
Bláa Lónið hefur tvöfaldað baðstað sinn að stærð og endurnýjað
hann og einnig er fyrirséð að enn eitt aðsóknarmetið verði slegið.
„Spurn eftir
heilsulindarþjónustu,
eða spa-þjónustu, hefur
vaxið gríðarlega erlendis á
undanförnum árum og sú
þróun mun einnig eiga sér
stað hér á landi.“
VÖXTUR
BLÁA LÓNSINS HF.
HELDUR ÁFRAM
TEXTI: HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR • MYND: GEIR ÓLAFSSON