Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 243
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 243
AUÐMAÐUR
Í HERBÚNINGI
HERTOGINN AF WESTMINSTER:
Landareignir í miðborg Lundúna og víðar gera hertogann
af Westminster að þriðja ríkasta manni Bretlands,
hann er ástríðufullur hermaður – en líf Geralds Grosvenors
virðist þó ekki eintómur dans á rósum.
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
H
ann er stundum sagður eiga hálfa
London. Auðvitað er það mikil
skreytni – þó hann sé ríkur og eigi
margar fasteignir. Hann heitir Ger-
ald Grosvenor og er í sjálfu sér ekki mjög
þekktur í Bretlandi, en nafnið birtist þó reglu-
lega í efstu sætunum á árlegum lista Sunday
Times yfir auðugustu íbúa landsins.
Þar til erlendum auðmönnum fjölg-
aði hafði Grosvenor, sem er líka her-
toginn af Westminster, trónað í efsta
sæti um árabil. Nú er hann í þriðja sæti,
á eftir Lakshmi Mittal og Roman Abramó-
vitsj – eignir hertogans eru metnar á 7 mill-
jarða punda, um 875 milljarða króna – hann
er þó aðeins hálfdrættingur á við Mittal.
Kjarni eignanna liggur í Grosvenor
Group, fasteignafélaginu sem á lóðir og hús
í kringum Grosvenor torg, meðal annars
undir bandaríska sendiráðinu, við Belgrave
og Eton torg en einnig í öðrum borgum eins
og Liverpool. Undanfarna áratugi hefur það
fært út kvíarnar til annarra landa, bæði í Asíu
og Bandaríkjunum. Hertoginn hefur lýst því
yfir að áhugaverðustu borgirnar til frekari
fasteignafjárfestinga séu Sao Paulo, Sjanghæ,
svæðið milli Los Angeles og San Diego, Tij-
una og Beirut.
En hertoginn á sér annað líf utan við-
skiptalífsins – hann er hermaður af lífi og
sál, stjórnaði herdeild og hafði skrifborð í
varnarmálaráðuneytinu. Í vor hætti hann þar
og gerðist óbreyttur hermaður. Þessa stökk-
breytingu á ferli hans má líklega rekja til
þess að snemma á árinu rakti síðdegisblaðið
News of the World samband Grosvenors
við vændiskonur – það þótti ekki við hæfi
að hertoginn gamnaði sér meðan hermenn
í hans herdeild berðust í Írak og Afganistan.
Áður hefur hann sagt frá sálarkreppu og
vanmetakennd sem stafi af því að fá allt upp
í hendurnar. En þrátt fyrir skakkaföllin eða
kannski vegna þeirra hefur Karl Bretaprins
fengið Grosvenor til að vera hollvinur sona
sinna og hertoginn og fjölskylda hans eru
nátengd konungsfjölskyldunni.
Miðaldir í miðborg Lundúna
Eignarhald á lóðum í London er einstakt:
fjórar aðalsfjölskyldur eiga megnið af mið-
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
Herinn og konungsfjölskyldan hafa verið
fastur liður í lífi hertogans af Westminster
og hann kemur helst fram í tengslum við
merkisatburði þar.