Frjáls verslun - 01.08.2007, Qupperneq 263
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 263
Lífsstíll
Dennis Lehane (Mystic River). Affleck
er enginn nýliði í handritsskrifum, fékk
óskarsverðlaunin ásamt Matt Damon
fyrir handrit að Good Will Hunting. Í
aðalhlutverkum eru Morgan Freeman,
Ed Harris, Michelle Monaghan og
bróðir Bens, Casey Affleck. Gone Baby
Gone verður frumsýnd í Bandaríkjunum
19. október.
Lions For Lambs Robert Redford
leikstýrði síðast The Legend of Bagger
Vance sem þótti ekki mjög merkileg
og standa að baki bestu kvikmyndum
hans, Ordinary People, A River Runs
Through It og Quiz Show. Í Lions For
Lambs leikur Redford eitt aðalhlutverkið
á móti stórstjörnunum Meryl Streep
og Tom Cruise. Myndin byrjar þegar
tveir háskólanemendur fara að ráðum
kennara síns, Malloy (Redford), um
að gera eitthvað mikilsvert í lífinu. Það
fer um kennarann þegar hann fréttir
að þeir hafi skráð sig í herinn og óskað
eftir að verða sendir til Afganistan. Ekki
er beint fylgst með dátunum tveimur
heldur hvernig dátarnir tengjast tveimur
sögum sem gerast í Kaliforníu og höfuð-
borginni Washington. Lions for Lambs
verður frumsýnd í Bandaríkjunum 9.
nóvember. Sama dag er áætlað að hún
verði frumsýnd hér á landi.
Into The Wild Sean Penn er ekki
alveg reynslulaus þegar kemur að leik-
stjórn. Into The Wild er fjórða kvik-
mynd hans á því sviði. Síðast leikstýrði
hann The Pledge með Jack Nicholson í
aðalhlutverki. Into The Wild er byggð
á sönnum atburðum og fjallar um
Christopher McCandles sem 22 ára
gamall og nýútskrifaður úr háskóla gaf
nánast allar eigur sínar og 24.000 doll-
ara sem hann hafði safnað og hélt einn
sín liðs á puttanum frá Kaliforníu til
Alaska. Á leið sinni hittir hann eftir-
minnilegar persónur. Örlög hans voru
þau að hann varð úti í vetrarkuldanum
í Alaska. Sean Penn skrifaði handritið
eftir metsölubók Jan Krakauer. Í aðal-
hlutverki er Emile Hirsch og í auk-
ahlutverkum eru meðal annars William
Hurt, Marcia Gay Harden, Catherine
Keener og Vince Vaughn.Into The Wild
var frumsýnd í Bandaríkjunum 21.
september og verður tekin til sýningar
hér á landi 24. nóvember nk.
Sleuth Kenneth Brannagh er jafn-
þekktur leikari og leikstjóri og er Sleuth
þrettánda kvikmyndin sem hann leik-
stýrir. Eru ekki nema fáeinir mán-
uðir síðan hann sendi frá sér fimmtu
Shakespeare-mynd sína, As You Like It
og í millitíðinni leikstýrði hann kvik-
myndaútgáfu af Töfraflautunni eftir
Mozart. Sleuth er endurgerð klassískrar
sakmálamyndar frá 1972 og fjallar um
leikara sem heimsækir rithöfund sem
hann hefur stolið eiginkonunni frá.
Um er að ræða sálfræðitrylli sem upp-
haflega er gerður eftir leikriti Anthony
Shafer, sem einnig skrifaði handritið
að fyrri myndinni. Í þetta sinn er það
Harold Pinter sem skrifar handritið. Í
fyrri myndinni lék Michael Caine unga
manninn og Laurence Olivier þann
eldri. Caine er nú í hlutverki rithöf-
undarins og Jude Law leikur leikarann.
Sleuth verður frumsýnd í Bandaríkj-
unum 12. október.
Leatherheads George Clooney
hefur sannað með fyrstu tveimur
kvikmyndunum sem hann leikstýrði,
Confession of a Dangerous Minds og
Good Night and Good Luck, að hann
hefur mikla hæfileika á þessu sviði.
Þriðja kvikmynd hans, Leatherheads,
er rómantísk gamanmynd og því öðru-
vísi en fyrri myndir hans tvær sem
voru dramatísk lýsing á lífi tveggja
manna sem báðir voru í rauninni til.
Leatherheads á það eitt sameiginlegt
með fyrri myndum Clooneys að hún
gerist á síðustu öld, nánar til tekið um
1920, og segir frá þjálfara ruðnings-
liðs og samskiptum hans við ungan og
efnilegan leikmann. Clooney skrifar
handritið og leikur sjálfur þjálfarann
og John Krasinski, sem getið hefur sér
frægð fyrir leik í amerísku Office-þátt-
unum, leikur ungan manninn. Rene
Zellweger er einnig í stóru hlutverki.
Leatherheads verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum 7. desember.
Cate Blanchett og Elísabet
Cate Blanchett fékk tilnefningu til óskarsverðlauna
þegar hún lék titilhlutverkið í Elizabeth, en missti af
þeim í það skiptið. Hún hefur nú annað tækifæri til
að vinna óskarinn fyrir sama hlutverk, en hún leikur
drottninguna í Elizabeth: The Golden Age, sem Shekhar
Kapur leikstýrir, en hann var einnig við stjórnvölinn í
Elizabeth. Það er að segja ef hún fær ekki óskarinn
fyrir að leika Bob Dylan í I’m Not Here, en Blanchett er
ein af sex leikurum sem leika Dylan í myndinni. Fékk
hún verðlaun sem besta leikkonan á kvikmyndahátíð-
inni í Feneyjum fyrr á árinu fyrir leik sinn í þeirri mynd.
Í Elizabeth: The Golden Age á drottningin í valdabaráttu
og þarf að koma í veg fyrir að henni sé steypt af stóli.
Auk þess fjallar myndin um rómantíkina á milli hennar
og Sir Walter Raleigh, sem Clive Owen leikur.
Margt býr í þokunni
Þær eru orðnar margar kvikmyndirnar sem gerðar
hafa verið eftir sögum Stephens Kings. Fáar hafa
heppnast mjög vel, en tvær af þeim best heppnuðu,
The Shawshank Redemption og The Green Mile var
leikstýrt af Frank Darabont. Hann leitar aftur í smiðju
Kings í nýjustu kvikmynd sinni The Mist. Eins og svo
margar skáldsögur Kings gerist The Mist í Maine. Eftir
mikinn storm er bær einn umlukinn mistri sem ekki
fer. Fljótt kemst fólk á snoðir um að í mistrinu leynist
blóðþyrstur óhugnaður í formi lífs sem fer að hrella
bæjarbúa og brátt er ljóst að eitthvað róttækt þarf að
gera eigi bærinn ekki að þurrkast út af landakortinu.
Daramont skrifar handritið og í aðalhlutverkum eru
Thomas Jane, Marcia Gay Harden og Andre Braugher.
Dönsk í Hollywood
Danski leikstjórinn
Susanne Bier er komin til
Hollywood. Bier hefur áður
leikstýrt þremur ágætum
kvikmyndum, Elsker dig for
evigt, Brødre og Efter bryl-
luppet sem allar fengu lof
og góða aðsókn. Hún leik-
stýrir nú Things We Lost in
the Fire, sem er stjörnum
prýdd kvikmynd, skartar Halle Berry, Benecio Del Toro,
David Duchovny og Alison Lohman í aðalhlutverkum.
Halle Berry leikur ekkju sem erfitt á með að ná sér upp
úr lægð sem hún komst í eftir dauða eiginmannsins.
Hún býður besta vini eiginmannsins, sem einnig á við
andleg vandamál að stríða, að búa hjá sér og tveimur
börnum sínum. Saman reyna þau að komast í takt við
lífið. Í kjölfar á velgengni Biers er aldrei að vita nema
næsti Norðurlandabúinn í Hollywood verði Baltasar
Kormákur, en hann er með tilboðin í vasanum.
Leikarar í leikstjórastólinn
Halle Berry leikur ekkju
sem syrgir eiginmann sinn í
Things We Lost in the Fire.
BÍÓMOLAR