Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Blaðsíða 27
Fréttamolar...
bródera en geymir það í Þorraseli, „var að fá mér
ný gleraugu og sá þá heilmikinn mun á rósunum
sem ég var að vinna, verð að rekja hina upp sem
ég gerði án gleraugnanna!"
Aðspurð um hvað sé eftirminnilegast og hvað
henni finnist hafa verið skemmtilegast þau ár er
hún var við störf, segir hún allt jafn skemmtilegt.
Það er bankað á dyrnar hjá henni, kominn er ná-
grannakona með fullt af heimalöguðu bakkelsi
sem hún færir Guðrúnu. Greinilega kærleikar
með nágrönnunum enda eflaust leitun að betri
nágranna en Guðrúnu.
Félagsráösfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga
var haldinn föstudaginn 27. febrúar 2004 kl. 10:00-
15:00 aö Suðurlandsbraut 22. Fundinn sátu auk
stjórnar félagsins formenn nefnda, fagdeilda og
svæðisdeilda.
Fyrir hádegi var á dagskrá framsöguerindi og umræður um „Gæði og ör-
yggi í heilbrigðisþjónustunni" í umsjón gæðastjórnunarnefndar Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Framsöguerindi undir heitinu Gæði og ör-
yggi í heilbrigðisþjónustunni fluttu Laura Sch. Thorsteinsson, formaður
gæðastjórnunarnefndar F.í.h. og Vilborg Ingólfsdóttir, gæöastjórnunar-
nefnd F.í.h. og Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur fjallaöi um mis-
tök í meðferð sjúklinga.
Lokaorðin í þessari samantekt eru frá nokkrum
vinkonum. „Guðrún er kát og skemmtileg og get-
ur gert grín að sjálfri sér,“ segir Áslaug Elsa.
„Hún á marga vini og þá meina ég vini en ekki
kunningja. Hún á svo auðvelt með að finna það
besta í fólki og laða það fram. Hún er mjög dug-
leg að hafa samband við vini sína og hvetja til
samskipta og það er ekki síst henni að þakka
hvað okkar hópur heldur vel saman. Við erum á-
reiðanlega ekki eini hópurinn sem hún heldur
Iífinu í. Einu sinni fór hún til London með
skólasystrum sínum úr Kvennó til að sýna þeim
borgina og sumar höfðu búið þar en aldrei séð
allt það sem Guðrún sýndi þeim. Mér þykir
reglulega vænt um Guðrúnu og minn hópur met-
ur hana mikils og það er mannbætandi að þekkja
fólk eins og hana“ segir Áslaug Elsa.
Góðar umræður urðu í framhaldi af framsöguerindunum. Rætt var m.a.
um hlutfallið milli hjúkrunarfræðinga og sjúklinga og að Félag íslenskra
hjúkrunarfræöinga þyrfti að hafa forgöngu um að setja staðla um þetta
hlutfall í samvinnu við LSH og Landlæknisembættið. í framhaldi af
framsöguerindi Lovísu var rætt um kröfu hjúkrunarfræðinga þess efnis
aö stofnunin/sjúkrahúsiö skapaði starfsmönnum sínum öruggt um-
hverfi til að starfa i, þ.e. umhverfi sem býður ekki þeirri hættu heim að
starfsfólkiö geri mistök. Ábending kom um það að félagiö þyrfti að
móta stefnu varðandi stuðning við hjúkrunarfræðinga sem lenda í mis-
tökum. Þá var rætt um hlutverk fagstétta i framhaldi af framsöguerindi
Vilborgar og lögð áhersla á að félagið haldi vörð um fagmennsku í
hjúkrun og upplýsi almenning um hvað stéttin stendur fyrir.
Eftir hádegið var kynntur rekstrarreikningur ársins 2003 sem og fjár-
hagsáætlun fyrir árið 2004. Undir liönum „í deiglunni" sagði Erlín Ósk-
arsdóttir, 1. varaformaður, frá því helsta sem félagið er að fást við þessa
dagana. Greindi hún m.a. frá stöðu mála í deilu Heilsugæslunnar í
Reykjavik og hjúkrunarfræðinga sem sinna heimahjúkrun og hvernig
samdráttur á LSH kemur við hjúkrunarfræðinga á stofnuninni bæði
m.t.t. breytinga á störfum og kjörum.
Sigurlín Gunnarsdóttir segir að henni detti í hug
setning sem er eignuð R.W. Emerson er hún
hugsi um Guðrúnu sem hefur verið vinkona
hennar um áratugaskeið, en setningin hljóðar
þannig: Maður eignast vini með því að vera sjálf-
ur vinur. Og hún rifjar upp hvað Guðrún hafi
gengið langt til að varðveita og rækta sambönd,
þannig hafi hún tekið kaþólska trú til að geta
gifst manni sínum, O’Leary, á sínum tíma.
„Guðrún hefur verið mér vinur og lærimóðir í
yfir 20 ár,“ segir Þórunn Ólafsdóttir. „Enn hring-
ir hún í mig og spyr mig hvernig gangi og hvað ég
sé að gera spennandi í hjúkrun. Eg get seint
þakkað henni allt það sem hún hefur gert fyrir
mig og með mér í gegnum þau 20 ár sem við höf-
um þekkst og verið vinkonur," segir Þórunn að
lokum.
Jón Aðalbjörn Jónson, ritari stjórnar, kynnti nýtt útlit heimasíðunnar og
nýjungar á þeim vettvangi en hann hefur unnið að þróun heimasíðunn-
ar undanfarin ár. Má þar nefna að fag- og svæðisdeildir hafa nú feng-
ið sitt eigið svæði á heimasíðunni og dagatal þar sem hægt er aö fá yf-
irlit yfir þá atburði sem eru á dagkrá.
Aöalbjörg J. Finnbogadóttir sagði frá því helsta sem er á döfinni hjá fé-
laginu varðandi fagleg málefni. Nefndi hún afmælisáriö, 12. maí sem
verður helgaður 85 ára afmælinu og þema ICN sem er fátækt og hjúkr-
unarþingi og afmælishófi 5. nóvember. Þá greindi hún frá ráöstefnunni
Hjúkrun 2004 og hvatti fundarmenn til að skoða vefsíður þessara við-
burða á heimsíðunni. Félagið mun halda málþing um öryggi sjúklinga í
samvinnu við Læknafélag íslands og sjúklingasamtök næsta haust. Að
lokum kynnti hún nýjustu nefndir félagsins, alþjóðanefnd stjórnar og
minjanefnd, og sagöi frá helstu verkefnum þeirra.
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004
25