Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Blaðsíða 47
Fréttamolar...
lagsmanna sinna á tveggja ára fresti handbók þar
sem fag- og kjaramálum eru gerð mjög góð skil.
Allt er þetta gert til að upplýsa félagsmenn um
réttindi þeirra. Ef hins vegar koma upp ágrein-
ingsmál á vinnustað ber hjúkrunarfræðingum að
leita réttar síns hjá trúnaðarmanni á vinnustaðn-
um. Dugi afskipti trúnaðarmannsins ekki til,
kemur til kasta félagsins. Trúnaðarmaðurinn er
fulltrúi félagsins á vinnustaðnum og þær lög-
bundu skyldur, sem honum eru lagðar á herðar,
eru í raun skyldur félagsins. Trúnaðarmaðurinn
byrjar á því að reyna að leysa vandamálin á
vinnustaðnum sjálfum en gangi það ekki verður
félagið að grípa inn í. Trúnaðarmaðurinn á rétt á
því að félagið styðji við bakið á honum. Það
styrkir trúnaðarmanninn ef atvinnurekendur vita
að hann hefur félagið með sér.
iii. Skipulag
Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
heldur mjög vel utan um trúnaðarmannakerfið.
Þar er skráð hverjir eru trúnaðarmenn, hvar þeir
starfa, hvenær þeir hófu störf og almennar upp-
lýsingar um vinnustaðinn og símanúmer. Gríðar-
lega mikilvægt er að upplýsa félagið um þegar
nýir trúnaðarmenn koma til starfa til að réttar
upplýsingar séu til staðar hjá skrifstofu félagsins
hverju sinni. Til að auðvelda þessa vinnu eru til
sérstök eyðublöð handa trúnaðarmönnum að
fyllaút.
Til að trúnaðarmaðurinn nýtist sem skyldi verð-
ur almennum félagsmönnum að vera kunnugt
um hlutverk trúnaðarmannsins og félagsins.
Þessi lesning hefur án efa skerpt á hlutverkinu
fyrir hinum almenna félagsmanni. Til stendur á
næstu vikum að setja inn á heimasíðu félagsins
hverjir eru trúnaðarmenn á hverjum vinnustað.
Það ætti einnig að auðvelda félagsmönnum að
hafa samband við trúnaðarmenn þegar upp
koma mál sem þarf að leysa.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga státar af fjöl-
rnennu og góðu trúnaðarmannakerfi. Virðum
þann lögvarða rétt sem fram hefur fengist með
baráttu formæðranna. Flöfum ávallt í huga mik-
ilvægi þess að félagið hafi á að skipa góðum og
traustum trúnaðarmönnum sem starfa fyrir fé-
lagsmenn og félagið.
Rauöi kjóllinn
Nú er tími til kominn aö sýna rauða kjólinn, tákn til aö auka vitund al-
mennings um aö konur fá hjartasjúkdóma og aö hjartasjúkdómar eru
þeir sjúkdómar sem draga flestar konur til dauöa.
í febrúarmánuði var rauöi kjólinn notaöur sem tákn um öll Bandaríkin
til aö vekja athygli almennings á hjartasjúkdómum meðal kvenna.
Bandarískum hjartasamtökin og Hjarta-, lungna- og blóöstofnun
bandaríska heilbrigöisráöuneytisins stóöu fyrir þessu átaki meö stuðn-
ingi frá ýmiss konar samtökum, 70 talsins. Athygli var vakin á
hættunni á aö konur fái hjarta- og æöasjúkdóma. Staöreyndin er sú aö
þriöja hver kona deyr af völdum hjarta- og æöasjúkdóma og tvær af
hverjum þremur konum, sem fengiö hafa hjartaáfall nær sér aldrei full-
komlega.
Bandarisku Hjartasamtökin gáfu út nýjar leiöbeiningar til aö hvetja
lækna til aö meöhöndla konur til aö draga úr líkunum á að fá þessa
sjúkdóma. Þessar leiðbeiningar voru birtar i febrúarhefti vísindaritsins
Circulation. Læknar eru eindregið hvattir til aö gera ráö fyrir því aö all-
ar konur i sjúklingahópnum séu i ákveðinni hættu á aö fá hjarta- og
æöasjúkdóma.
Þeim konur, sem eru í mestri hættu, ætti aö veita lyfjameðferö af full-
um krafti í með ACE-hamlandi lyfjum (ACE-blokkara), beta-hamlandi
lyfjum (beta-blokkum), Statin-lyfjum (blóöfitulækkandi lyfum), aspiríni
og blóðþrýstingslækkandi lyfjum.
"Læknar verða aö gera sér grein fyrir því að þeir geta haft áhrif á dánar-
tíöni og heilsuleysi meðal kvenna vegna þessara sjúkdóma," er haft
eftir einum sérfræöingi á sviöi hjartalækninga.
Sjá nánar frétt á www.hjarta.is og áhugaverðar slóðir:
„Evidence-Based Guidelines for Cardiovascular Disease Prevention in
Women". Circulation, 10. feb. 2004.
(http://circ.ahajournals.Org/cgi/content/full/109/5/672);
"Tracking Women's Awareness of Heart Disease: An American Heart
Assn. National Study." Circulation, 10. feb. 2004.
(http://circ.ahajournals.Org/cgi/content/full/109/5/573);
The National Institutes of Health's red dress campaign to raise
awareness of women's heart disease (www.hearttruth.com).
Þorgeröur Ragnarsdóttir, forstööumaöur Sjónarhóls
Þorgeröur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Sjónarhóls.
37 umsóknir bárust um starfið sem auglýst var laust til umsóknar 15.
febrúar.
Þorgeröur Ragnarsdóttir er fædd 1958 og ólst upp í austurbæ Reykja-
víkur frá þriggja ára aldri. Hún lauk prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
íslands 1982, meistaraprófi frá Háskólanum í Madison í Wisconsin í
Bandaríkjunum 1992 og stundar nú MPA-nám viö Háskóla íslands. Hún
starfaöi viö hjúkrun í Danmörku og á Landspítalanum á árunum 1982-
1994, ritstýrði Tímariti hjúkrunarfræöinga 1994-1999 og var fram-
kvæmdastjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs 1999-2004.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004